Á starfsmannavefnum er hægt að birta upplýsingar um þá styrki og heilsueflingu sem starfsfólki stendur til boða . Hægt er sjá nánari upplýsingar hér að neðan. Einnig er til önnur sambærileg virkni sem er sérhönnuð fyrir umsókn og utanumhald um samgöngustyrk. Sjá nánar hér.
Í virkninni Styrkir og heilsuefling er hægt að sýna upplýsingar/leiðbeiningar um viðkomandi styrk, hafa möguleika á að vista viðhengi með og/eða hafa hlekk á umsóknarform á annarri síðu, ef við á. Ef viðhengi er vistað með þá verður aðgengilegt mannauðsdeild í spjaldinu Viðhengi í Kjarna og aðgengilegt starfsmanninum sjálfum í Skjalaskáp á starfsmannavef. Einnig er hægt að láta viðhengið sendast í tölvupósti á tiltekið netfang um leið og það er vistað.
...
Á upphafssíðu starfsmannvefs er hægt að birta yfirlit yfir þá styrki og þá heilsueflingu sem stendur starfsfólki til boða. Það er stillingaratriði hvort þessar flísar birtist á upphafssíðu og er það stillingin Employee.Web.Dashboard í Vefgildi sem stýrir því, sjá Starfsmannavefur - stillingar
...