Flytja áramótafærslur

Með aðgerðinni “Flytja ármótafærslur” er hægt að flytja áramótastöðu safnfærslna á milli ára. Þetta hentar vel fyrir t.d Frítökurétt.

Ef hakað er í Stofna útborgun þá verður til ný útborgun fyrir þessar færslur.

Hægt er að skoða færslur án þess að vista færslurnar en þá er ekki hakað í “Geyma niðurstöðu”.

Aðeins er hægt að flytja áramótastöðu launaliða sem eru af tegundinni Safnfærla. Í stofnupplýsingum launaliða þarf að stilla hvort flytja megi áramótastöðu á milli ára og einnig er hægt að tilgreina þar tímabil. Ef t.d áunnin réttindi frá september eiga að flytjast á milli áramóta þá væri stillingin svonasett 9 í “Frá og með mánuður nr.”

Image Added