Áramótavinnsla - Flutningur safnfærslna á milli ára
Með aðgerðinni “Flytja ármótafærslur” er hægt að flytja áramótastöðu safnfærslna á milli ára. Þetta hentar vel fyrir t.d Vetrarfrí og frítökurétt.
Ekki þarf að nota þessa aðgerð fyrir orlof og uppbætur.
Flytja áramótafærslur |
|
---|---|
Athugið að ef notaðir eru tveir launaliðir fyrir frítökurétt, einn fyrir áunna tíma og annar fyrir úttekna tíma þá þarf að slá þá báða inn í svæðið safnfærslur þannig að báðir séu sóttir. | Aðgerðin er undir hliðarvalmynd/Kjarni/Laun/Áramótavinnsla Með aðgerðinni “Flytja ármótafærslur” er hægt að flytja áramótastöðu safnfærslna á milli ára. Þetta hentar vel fyrir t.d Vetrarfrí og frítökurétt. Ef hakað er í Stofna útborgun þá verður til ný útborgun fyrir þessar færslur. Hægt er að skoða færslur sem munu flytjast yfir án þess að vista færslurnar en þá er ekki hakað í “Geyma niðurstöðu”.
Aðeins er hægt að flytja áramótastöðu launaliða sem eru af tegundinni Safnfærsla. Í stofnupplýsingum launaliða þarf að stilla hvort flytja megi áramótastöðu á milli ára og einnig er hægt að tilgreina þar tímabil. Ef t.d áunnin réttindi frá september eiga að flytjast á milli áramóta þá væri sett 9 í “Frá og með mánuður nr.”
|