Á starfsmannavefnum er hægt að birta upplýsingar um þá styrki og heilsueflingu sem starfsfólki stendur til boða sjá nánari upplýsingar hér að neðan. Einnig er til önnur sambærileg virkni sem er sérhönnuð fyrir umsókn og utanumhald um samgöngustyrk, kosturinn við þá virkni er
betra utanumhald yfir alla tölfræði varðandi hversu margir velja almenningssamgöngur, hversu margir velja að hjóla o.sfrv. Einnig er haldið utan um færslurnar í spjaldinu Fastir launaliðir. Sjá nánar upplýsingar um þessa sérhönnuðu virkni hér.
Í virkninni Styrkir og heilsuefling er hægt að sýna upplýsingar/leiðbeiningar um viðkomandi styrk, hafa möguleika á að vista viðhengi með og/eða hafa hlekk á umsóknarform á annarri síðu, ef við á. Ef viðhengi er vistað með þá verður aðgengilegt mannauðsdeild í spjaldinu Viðhengi í Kjarna og aðgengilegt starfsmanninum sjálfum í Skjalaskáp á starfsmannavef. Einnig er hægt að láta viðhengið sendast í tölvupósti á tiltekið netfang um leið og það er vistað.
...
Á upphafssíðu starfsmannvefs er hægt að birta yfirlit yfir þá styrki og þá heilsueflingu sem stendur starfsfólki til boða. Það er stillingaratriði hvort þessar flísar birtist á upphafssíðu og er það stillingin Employee.Web.Dashboard í Vefgildi sem stýrir því, sjá Starfsmannavefur - stillingar
...