Uppsetning bókhaldslykla er í gegnum Launahring.
Smellt er á textann Bókhald vinstra megin við hringinn.
...
Í upphafi við stofnun bókhaldslykla er ferlið sem hér segir:
- Stofna Liði - sjá mynd af flæðiriti - bókhaldsaðgerðir
- Stofna Lykla
- Tengja Liði á launaliði
Liðir
Þegar smellt er á kassann Liðir í flæðiritinu kemur upp tóm tafla með tveimur dálkum Bókun vísir (númer) og Bókun (nafn).
Smellt er á græna plúsinn í tækjaslánni og númer vísis og nafn bókunar slegið inn.
Hægt er að velja um
...
Tímabilin, Bókunardagur, Færsludagur eða Bókunardagur
...
síðasti (eftirá) eða fyrsti (fyrirfram). Sjálfgefið stendur fyrir Bókunardag.
...
Smellt á Stofna og loka.
Ferlið endurtekið þar til búið er að stofna alla þá bókhaldsflokka sem þörf er á.
Lyklar
Næsta skref er að skrá bókhaldslykla inn á liðina.
Hægt er að smella á kassann Lyklar eða halda áfram í Liðum og smella þar á bláa undirstrikaða textann Launafærslur.
- Bókun vísir = númer Liðar sótt í táknið þrír punktar (ATH. ef breyta á áður stofnuðum lykli þarf að tvísmella í svæðið bókun vísir)
- Fyrirtæki nr. = sótt í táknið þrír punktar
- Röð = 1
- Vídd = +
- Lykill = uppröðun hér fer eftir kröfum bókhaldskerfis.
Oftast er þessum svæðum skipt upp með semikommu. Hvert bil á milli semikomma kallast vídd, þannig er svæðið fyrir framan fyrstu semikommu kallað Vídd 0- Oftast byrjar lykillinn á númeri bókhaldslykils = Vídd 0
- Oftast er deildin á eftir fyrstu semikommu = Vídd 1
Hægt er að hægrismella í svæðið Lykill og velja úr eftirfarandi bókunarsviðum:
Bókunarsvið:
ávinnsla = Sækir aðeins þær ávinnslur sem skilgreindar eru
dagpen. vísir = Sækir vísis númer dagpenoingafærslu
dagpen. útborgun = Sækir númer útborgunar sem dgpeningar eru færðir í
dagpen. banki = Sækir skilgreint bankanúmer gjaldmiðils dagpeninga
Erlendur bankareikningur = er skráð í spjaldinu starfsmaður, hægt að nota þetta bókunarsvið til að bóka laun inn á lánadrottinn í stað ógreidd laun
gjöf = Sækir kennitölu viðtakanda gjafar. Ef viðtakandi er starfsmaður í fyrirtækinu þá er kennitala viðtakanda skrá í textasvæði launaliðar með @ merki fyrir framan kennitöluna. Oftast kemur þetta úr excel innlestri
greiðsluform = sækir númer greiðsluforms launafærslu, 1=fyrirfram og 2=eftirá
Inngjalddagi = sækir dagsetningu gjalddaga innheimtuaðila
kennitala = sækir kennitölu starfsmanns
kostnaðarstöð = sækir bókhaldslykil sem skráður er á kostnaðarstöðvar í stofnskrám
kostnaðarstöð nr = sækir númer kostnaðarstöðva ekki vísisnúmer
launaliður = sækir númer launaliðar
launamaður = óvirkt
nafn launamanns = sækir nafn launamanns
líf = sækir bókhaldslykil í stofngögn lífeyrissjóðs
lífgjalddagi = sækir dagsetningu gjalddaga lífeyrissjóðs
lífknt = sækir kennitölu lífeyrissjóðs
lífkntaðili = sækir kennitölu innheimtuaðila ílfeyrissjóðs
lífnafn = sækir nafn lífeyrissjóðs
regla = óvirkt
reiknir = óvirkt
sam = óvirkt
skipulagseining = sækir bókhaldslykil sem skráður er á skipulagseiningar í stofnskrám
staða = sækir bókhaldslykil sem skráður er á stöður í stofnskrám
staðsetning = sækir bókhaldslykil sem skráður er á staðsetningar í stofnskrám
starfsmaður = óvirkt
starfsmannanúmer = sækir starfsmannanúmer starfsmanns
stétt = sækir bókhaldslykil sem skráður er á stéttarfélag
stéttgjalddagi = sækir dagsetningu gjalddaga stéttarfélags
stéttknt = sækir kennitölu stéttarfélags
stéttkntaðili = sækir kennitölu innheimtuaðila stéttarfélags
stéttnafn = sækir nafn stéttarfélags
svið = sækir bókhaldslykil sem skráður er á skipulagseiningar í stofnskrám ef skipulagseining er svið
svæði = sækir bókhaldslykil sem skráður er í stofnskrám fyrir svæði
udirsvæði = óvirkt
útborgun = sækir númer útborgunar
verk = sækir bókhaldslykil sem skráður er á verk í stofnskrám
Verk ytra = Sækir verknúmer sem skráð er í launalínu
vísir = sækir vísis númer útborgunar
wage = sækir númer launaliðar