Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 33 Next »

Á starfsmannavefnum er hægt að birta upplýsingar um þá styrki og heilsueflingu sem starfsfólki stendur til boða, sjá nánari upplýsingar hér að neðan. Einnig er til önnur sambærileg virkni sem er sérhönnuð fyrir umsókn og utanumhald um samgöngustyrk, kosturinn við þá virkni er betra utanumhald yfir alla tölfræði varðandi hversu margir velja almenningssamgöngur, hversu margir velja að hjóla o.sfrv. Einnig er haldið utan um færslurnar í spjaldinu Fastir launaliðir. Sjá upplýsingar um þessa sérhönnuðu virkni hér

Í virkninni Styrkir og heilsuefling er hægt að sýna upplýsingar/leiðbeiningar um viðkomandi styrk, hafa möguleika á að vista viðhengi með og/eða hafa hlekk á umsóknarform á annarri síðu, ef við á. Ef viðhengi er vistað með þá verður aðgengilegt mannauðsdeild í spjaldinu Viðhengi í Kjarna og aðgengilegt starfsmanninum sjálfum í Skjalaskáp á starfsmannavef. Einnig er hægt að láta viðhengið sendast í tölvupósti á tiltekið netfang um leið og það er vistað. 

Það eru síðan tveir mismunandi möguleikar í boði eftir því hvernig styrk er verið að birta:

  1. Ef um er að ræða styrk að ákveðinni upphæð þá er hægt að birta upphæðina sem starfsmönnum stendur til boða auk upplýsinga um þá upphæð sem starfsmaður hefur þegar nýtt. Upphæðin sem þegar hefur verið nýtt er sótt í tiltekinn launalið.
  2. Ef aftur á móti um er að ræða t.d. styrk sem gildir í tiltekinn tíma þá er hægt að birta upplýsingar um hversu lengi styrkurinn gildir og er dagsetningin þá sótt í endadagsetningu tiltekins launaliðar í föstum launaliðum. 

Á sama stað er einnig hægt að birta upplýsingar um aðra heilsueflingu sem gæti staðið til boða eins og samtal við trúnaðarlækni, augnskoðun eða annað sambærilegt. 

Birting á vef

Á upphafssíðu starfsmannvefs er hægt að birta yfirlit yfir þá styrki og þá heilsueflingu sem stendur starfsfólki til boða. Það er stillingaratriði hvort þessar flísar birtist á upphafssíðu og er það stillingin Employee.Web.Dashboard í Vefgildi sem stýrir því, sjá Starfsmannavefur - stillingar

þegar smellt er á Skoða nánar birtast svo ítarlegri upplýsingar um þá styrki sem eru í boði. 

 


Það sama á við um Heilsuefling en undirsíðan fyrir það er hægt að birta í Valmynd og birtist einnig þegar smellt er á Skoða nánar

Stillingar

Stillingar fyrir þessa virkni eru aðgengilegar í kerfisvalmynd undir Stillingar > Styrkir

Hér að neðan sést dæmi um hvernig stillingarnar geta litið út og fyrir neðan skjámyndina er hver dálkur í stilltöflunni útskýrður nánar. 

  1. Í Nafn er skráð sú fyrirsögn sem á að birtast á viðkomandi flís á starfsmannavefnum. 
  2. Tegund styrks tilgreinir hvort um Styrk, Heilsueflingu eða Líkamsræktarstyrk er að ræða upp á flokkunina og birtingu á flísum. ATH! Ef tegund styrks = Líkamsræktarstyrkur er notuð þá vistast niður færsla í spjaldið Fastir launaliðir þegar starfsmaður sækir um líkamsræktarstyrkinn. Sú færsla er þá með upphafs- og endadag sem fyrsta dag næsta mánaðar og þann launalið sem skilgreindur er í dálkinum Launaliður nr. Launaliðinn (undir flipanum Reikniform) þarf að stilla sem eftirá launalið (í Tímabil og Greiðsluform) til þess að allt virki rétt. 
  3. Birta segir til um hvort sækja eigi upphæð í launaskráningu (Upphæð) dagsetningu í fasta launaliði (Dagsetning) eða hvorugt (Ekkert)
  4. Launaliður nr. segir til um hvaða launalið á að sækja upplýsingar fyrir í launaskráningu eða föstum launaliðum m.v. það sem valið var í Birta eða á hvaða launalið í föstum launaliðum líkamsræktarstyrkur er vistaður ef tegund styrks er = Líkamsræktarstyrkur.
  5. Launaliður sýnir nafn þess launaliðs sem skráður var í Launaliður nr. 
  6. Sniðmát vísir er númer þess sniðmáts sem að birta texta á vefnum úr. Sniðmát er aðgengilegt í Kjarni > Stofnskrár > Bréf. Passa þarf að hafa textann ekki of langan svo hann rúmist örugglega á flísinni. Um 9 línur af texta komast fyrir á flísinni. 
  7. Sniðmát birtir nafn viðkomandi sniðmáts. 
  8. Hlekkur er vefslóð á síðu sem hægt er að vísa á. Ef vefslóð er skilgreind þarna þá birtist hnappurinn Sækja um á viðkomandi flís á starfsmannavefnum. 
  9. Tegund skjals vísir segir til um á hvaða skjalategund skjal á að vistast á ef starfsmaður á að geta hengt viðhengi við. (Ath. að aðgangur að þessari skjalategund verður að vera í starfsmannavefshlutverkinu svo að skjalið vistist niður í viðhengjaspjald starfsmanns. Senda þarf beiðni á service@origo.is með ósk um breytingu á hlutverki).
  10. Tegund skjals er nafn viðkomandi viðhengjategundar. 
  11. Netföng segir til um á hvaða netfang/netföng viðhengið á að sendast á, ef við á. Meginmál í tölvupóstinum er textinn úr sniðmátinu sem skilgreint er í Sniðmát. Sjá upplýsingar hér neðar ef meginmál tölvupóstins á að vera annar texti.
  12. Ráðningamerking er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi ráðningarmerkingar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna. Ef valið er Óskilgreint þá birtast upplýsingarnar hjá öllum starfsmönnum. 
  13. Tegund ráðningar er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi tegundir ráðningar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna. Ef valið er Óskilgreint þá birtast upplýisngarnar hjá öllum starfsmönnum. 
  14. Upphæð (aftasta svæðið í stillitöflunni) segir til um þá upphæð sem starfsmaður á rétt á fyrir þennan tiltekna styrk. Þetta upphæðarsvæði er eingöngu virkt á vefnum ef tegundin Líkamsræktarstyrkur er valin í dálkinum Tegund styrks. 

Meginmál tölvupóstsins annar texti en er í sniðmátinu

Ef textinn sem birtist í tölvupóstinum á að vera annar en textinn úr sniðmátinu er hægt að skilgreina hann í stillingum fyrir styrkinn. Velja þarf hnappinn breyta  til að geta skráð textann inn. Opnast þá gluggi þar sem hægt er að viðhalda öllum upplýsingum og skrá inn textann.


Til að notendur sem eingöngu eru með starfsmannavefshlutverkið fái aðgang að þessum upplýsingum þarf að uppfæra hlutverkið fyrir starfsmannavefinn. Senda þarf beiðni á service@origo.is með ósk um breytingu á hlutverki.


  • No labels