Í Kjarna er boðið upp á sjálfvirkar hækkanir tengdar líf- og starfsaldri. Þessar hækkanir taka til orlofsflokk, launaflokka, þrepa, aukaflokka og álags.
Í upphafi þarf að skilgreina hækkunarmynstur fyrir launatöflurnar.
Við hverja útborgun er svo hægt að keyra hækkunarlista sem sýnir hvaða starfsmenn eiga að hækka m.v. þær reglur sem hafa verið skilgreindar.
ATH! Forsendur fyrir því að aldurshækkanir virki eru að starfsmaður sé með grunnlauna-, orlofs- og vinnutímaspjald í gildi á því tímabili sem hækkanirnar ná til.