Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 15 Next »

Innlestur gjaldheimtugjalda á sér stað á sama stað og bunkainnlestur, undir innlestur í launahringnum. 

 
Til að lesa inn skrá með gjaldheimtugjöldum er smellt á lesa gjöld. Það opnast gluggi þar sem skráin er sótt og frekari upplýsingar um gjöldin slegin inn. 

Lesa

Lesa: Lesa inn nýja skrá, aðsent skjal eða eigið skjal

Eins og í bunkainnlestrinum er skráin sótt með því að smella á punktalínuna. Nauðsynlegt er að setja skýringu í þar til gerðan reit. 
Velja þarf kröfugerð hvort um er að ræða einn gjalddaga eða 5 gjalddaga.

Hægt að velja tegund, hvort þetta sé eingreiðsla, föst greiðsla eða dreifð greiðsla.

Gjaldheimta nr: Valið er svo númer innheimtuaðila (getur verið mismunandi eftir fyrirtækjum)

Skráist á launlið nr: Launaliðanúmer gjaldheimtugjaldana.

Tegund: Algengast er að þetta sé eingreiðsla en þó mismunandi.

Þegar verið er að lesa inn opinber gjöld/eftirágreidda skatta verður alltaf að nota tegundina eingreiðsla.

Þegar smellt er á lesa opnast listi yfir aðgerðarsögu sem má loka. 

Þá birtist listi yfir þær kröfur sem á að lesa inn. Hér er hægt að fara inn í listann og breyta ef þess þarf.

ATH! Muna að vista þá breytingu sem gerð er á listanum - smella á diskettu í tækjaslá !!

Til að flytja skráninguna yfir í launaskráningu þarf að velja táknið „Flytja gjaldheimtugjöld frá bunka í spjöld" Þá opnast þessi gluggi þar er smellt á Flytja. 
Athugasemd kemur neðst í hægra horni um hvort innlestur tókst eða ekki. 
Í athugasemdinni segir hversu margar færslur voru í bunkanum og hversu margar voru lesnar inn. Í þessu dæmi voru 7 færslur í bunka sem allar voru fluttar í gjaldheimtuspjöld viðkomandi starfsmanna. 
Skoða
Skoða: Þegar smellt er á skoða opnast listi yfir lista sem þegar er búið að lesa inn eða færslur sem hafa verið skráðar í kerfið. Ef tvísmellt er á línuna opnast Gjaldheimtugjalda spjald viðkomandi starfsm
Eyða
Eyða: Hægt er að eyða bunkafærslum í gjaldheimtugjöldum með því að smella á eyða hnappinn. Þá opnast valgluggi þar sem forsendur eru slegnar inn og aðgerðin kláruð með því að ýta á eyða.
75 %reglan

75% reglan fyrir opinber gjöld er svona í Kjarna :  ( heildarlaun * 75% ) -  ( meðlag + iðgjald í almennan sjóð + greidd staðgreiðsla ),   

Fyrst er reiknað 75% af heildarlaunum. Síðan er meðlag, iðgjald í almennan lífeyrissjóð og greidd staðgreiðsla lögð saman. Að lokum er frádrátturinn dreginn frá 75% launum og gefur sú tala það hámark sem nota má til frádráttar opinberra gjalda.



  • No labels