Innskráning
Tvær leiðir eru til að skrá sig inn á vefinn. Ef fyrirtæki eru með Single Sign On tengingu í kerfinu dugir að smella á Windows innskráning. Ef fyrirtæki eru ekki með slíka tengingu þarf að senda notanda notendanafn og lykilorð, eða nota sama notendanafn og lykilorð og það sem notað er til að skrá sig inn í Kjarna ef notendur eru að vinna í Kjarna.
Aðgangur
Til að geta gefið starfsmönnum fyrirtækis aðgang að vefnum þurfa notendanöfn þeirra að vera skráð í spjaldið Starfsmaður. Einnig þarf netfangið þeirra að vera skráð í spjaldið Starfsmaður.
Að veita aðgang að kerfinu
Allir starfsmenn þurfa að vera notendur í Kjarna og þurfa að fá sent aðgangsorð til að skrá sig inn á vefinn (ekki þarf að senda aðgangsorð ef notað er Single sign on). Til að stofna notendur í Kjarna er farið í flipann Aðgerðir > Stofna notanda. Einnig er hægt að stofna marga starfsmenn sem notendur í einu lagi, sjá hér.
ATH ef að fyrirtæki eru með tengingu við ActiveDirectory þarf ekki að senda starfsmönnum sérstakt lykilorð í Kjarna.
Þegar smellt er á Skrá opnast gluggi þar sem valin eru þau hlutverk sem viðkomandi notandi á að vera með. Hakað er í Has Access og smellt á Hlutverk. Þar þarf að stofna nýja færslu og velja viðeigandi hlutverk. Þeir starfsmenn sem eiga eingöngu að hafa aðgang að starfsmannavef fá á sig hlutverkið Starfsmannavefur.
Til þess að starfsmaður geti skráð sig inn á starfsmannavefinn þarf að vera tenging til staðar á milli starfsmannsins og notanda hans. Er þessi tenging skráð í listann EmployeeXapUser.List. Myndast þessi tenging sjálfkrafa þegar notandi er stofnaður.
Aftur á móti getur verið að þessi tenging sé ekki til staðar hjá eldri viðskiptavinum og getur því þurft að handskrá þessa tengingu í EmployeeXapUser.List. Hægt er að komast í EmployeeXapUser.List með því að slá það inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter.
Hægt er að setja inn stillingu þannig þegar starfsmaður er stofnaður, notendanafnið skráð í spjaldið Starfsmaður að þá stofnist hann sem notandi og fær hlutverkið Starfsmannavefur. Mælt er með því að setja inn þessa stillingu ef starfsmenn eiga að fá strax aðgang að starfsmannavefnum þegar þeir hefja störf. Ef óskað er eftir því að fá þessa stillingu inn þarf að senda beiðni á service@origo.is