Ástæða starfsloka - Brotthvarf úr starfi
Bætt hefur verið við nýrri Ástæðu starfsloka í spjaldið Tenging innan fyrirtækis. Nýja ástæðan er Brotthvarf úr starfi.
Innsláttur í svæðið Fjöldi vinnustunda á dag m.v. fullt starf
Select lista fyrir spjaldið Vinnutími hefur verið breytt þannig að þar sé hægt að slá inn í svæðið Fjöldi vinnustunda á dag m.v. fullt starf.
Eyða launamannanúmeri - eyðir öllum undirspjöldum
Því hefur verið bætt við að ef launamannanúmeri er eytt þá eyðast sjálfkrafa öll undirspjöld fyrir þetta launamannanúmer, þ.e. ef engar launafærslur hafa verið skráðar á þetta launamannanúmer. Ef launafærslur eru skráðar þá er ekki hægt að eyða launamannanúmerinu og kemur þá upp melding þess efnis. Þessi virkni er alveg eins og þegar starfsmannanúmeri er eytt.
Orlofsreikningur þegar launareikningur er til staðar
Nú er aftur hægt að skrá orlofsreikning í bankaspjald á sama tímabili og launareikning.