Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 7 Next »

Listinn auglýsingasvör er nú aðgengilegur úr stofnspjaldi auglýsingar

Þegar stofnspjald auglýsingar er opnað er búið að bæta við þessum hnapp í tækjastikuna. Þegar smellt er á hann opnast listinn auglýsingasvör sem inniheldur lista yfir alla umsækjendur um tiltekið starf og svör úr umsóknum þeirra.

Senda viðhengi umsækjenda í tölvupósti

Nú er hægt að senda viðhengi umsækjenda í tölvupósti á yfirmenn og aðra ráðningaraðila innan fyrirtækisins. Viðhengin er hægt að senda úr listunum Umsóknir og Auglýsingasvör. Þegar viðhengi hafa verið send út vistast færsla þess efnis í samskiptaspjald umsækjandans.

Flytja hóp umsækjenda yfir í starfsmannahluta Kjarna

Aðgerðinni Flytja umsækjendur hefur verið bætt við ráðningahlutann. Aðgerðin er aðgengileg fyrir neðan Auglýsingar í hliðarvalmyndinni undir Kjarni > Ráðningar. Með þessari aðgerð er hægt að flytja hóp umsækjenda yfir í starfsmannahlutann með öllum þeim upplýsingum sem þeir skráðu á sig í umsóknarferlinu auk þess sem hægt er að stofna viðeigandi launaupplýsingar á þá í einu skrefi. 

Hraðað á listanum Auglýsingasvör

Hraðað hefur verið á listanum Auglýsingasvör

Aðgangur að umsækjendum

Bætt hefur verið inn aðgangsstýringu þannig að hægt er að gefa völdum notendum aðgang að öllum umsækjendum tiltekinna auglýsinga. Flipanum Aðgangur hefur verið bætt inn á auglýsingar og þar eru valdir þeir notendur sem eiga að fá aðgang að umsækjendum 

 

  • No labels