Úr listunum Umsóknir og Auglýsingasvör er hægt að senda viðhengi umsækjenda í tölvupósti til yfirmanna eða annarra ráðningaraðlila innan fyrirtækisins. Viðkomandi umsækjendur eru valdir og smellt á hnappinn Senda viðhengi.
Upp kemur gluggi þar sem valið er hvaða viðhengjategundir á að senda auk þess sem viðtakandinn er valinn úr starfsmannalista hægra megin á skjánum. Eins og staðan er núna þá er eingöngu hægt að velja einn viðtakanda. Kalla þarf því aðgerðina upp aftur ef senda á viðhengi á annan viðtakanda.
Þegar viðhengin eru senda þá visast færsla í samskiptaspjald umsækjandans með upplýsingum um hvenær viðhengin voru send og hver viðtakandinn var.
General
Content
Integrations