Senda viðhengi í tölvupósti
Úr listunum Umsóknir og Auglýsingasvör er hægt að senda viðhengi umsækjenda í tölvupósti til yfirmanna eða annarra ráðningaraðlila innan fyrirtækisins. Viðkomandi umsækjendur eru valdir og smellt á hnappinn Senda viðhengi.
Upp kemur gluggi þar sem valið er hvaða viðhengjategundir á að senda auk þess sem viðtakandinn er valinn úr starfsmannalista hægra megin á skjánum. Eins og staðan er núna þá er eingöngu hægt að velja einn viðtakanda. Kalla þarf því aðgerðina upp aftur ef senda á viðhengi á annan viðtakanda.
|