Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Version History

« Previous Version 7 Current »

Hægt er að eyða starfsmönnum sem hafa verið stofnaðir í Kjarna að því gefnu að ekki sé búið að skrá neinar launafærslur á starfsmann. Þetta getur t.d. verið í þeim tilvikum þegar einstaklingur er ráðinn í starf, hann stofnaður í Kjarna en síðan afþakkar hann starfið áður en kemur að fyrsta starfsdegi.

Til að eyða starfsmanni í Kjarna er farið í listann Starfsmenn í hliðarvalmynd Mannauðs þar sem starfsmaður er valinn úr listanum og ýtt á eyða hnappinn í tækjaslánni. 

Þá opnast grunnspjald starfsmanns þar sem ýtt er á Eyða og loka

Kerfið kemur þá upp með glugga þar sem notandi er beðinn um að staðfesta að hann vilji eyða viðkomandi starfsmanni. Þegar ýtt er á Áfram eyðast öll spjöld og viðhengi viðkomandi úr kerfinu. 
Ef að launamaður er með skráðar launafærslur á sig kemur kerfið upp með meðfylgjandi villu og heimilar ekki að starfsmanni sé eytt. 
  • No labels