Aðgerðin að Leiðrétta laun afturvirkt er notuð þegar gera þarf launabreytingar aftur í tímann, hvort heldur sem er vegna persónubundinna launahækkana eða þegar breytingar verða á kjarasamningum. Hægt er að komast í aðgerðina í gegnum hliðarvalmynd launa og líka beint úr launaskráningu. Þegar laun eru leiðrétt fyrir stóran hóp starfsmanna, t.d. kjarasamning, mælum við með því að fara í hliðarval Kjarni > Laun > Leiðrétta laun Þegar laun eru leiðrétt fyrir staka starfsmenn, mælum við með því að það sé gert beint úr launaskráningunni. Aðgerðin er í aðgerðahjóli í neðri tækjaslánni, í skráningarglugganum sjálfum, sjá mynd. | |
Þegar breyting er gerð á launum stafsmanns (vegna launahækkunar, breytingar á launasamsetningu eða aðrar breytingar) sem eiga að gilda afturvirkt er notuð aðgerðin að leiðrétta laun.
Dæmi: Starfsmaður fer úr launaþrepi 3 í launaþrep 4 frá áramótum. Grunnlaunaspjald starfsmanns er opnað og gild færsla valin í töflu á hægri hlið. Smellt á táknið „Afrita". Nýju færslunni gefin dagsetning 1.1.2015 og þrepi breytt úr 3 í 4 og dagsetningin gildir frá er sett 1.1.2015. Spjaldið vistað með diskettunni. | |
Upp kemur athugasemd um að launafærslur séu til á viðkomandi starfsmann. Smellt á OK og síðan á „Fríska" táknið í tækjaslánni. Þegar breytingar eru gerðar vegna kjarasamningshækkana þarf fyrst að gera breytingu á viðeigandi samningi. | |
Þegar búið er að gera viðeigandi breytingar er smellt á hnappinn leiðrétta laun í hliðarvalmynd launa. Þá opnast valgluggi launa leiðréttingar. Í neðri dálkinn eru settar upplýsingar um í hvaða útborgun leiðréttingin á að koma og hakað við hverskonar breytingu er um að ræða. Ef um persónubundna breytingu er að ræða þarf að setja hak við „Breytt um samning, launaflokk, þrep eða álag". Hér er lýsing á hverri aðgerð:
| |
Þegar búið er að ýta á Leiðrétta opnast aðgerðasögu gluggi, með því að tvísmella á línuna er hægt að skoða færslur, breyta eða eyða leiðréttingarfærslum hjá hverjum og einum launamanni. Ef hakað var við Sýna leiðréttingarfærslur þá kemur upp listi yfir allar breytingar. Þessi listi er breytingarlisti, þannig að hér er hægt að eyða út færslum á þægilegan hátt eða breyta færslum ef þörf er á. | |
Ef launaskráningar glugginn var opinn meðan á aðgerð stóð þarf að fríska gluggann til að fá leiðréttinguna til að birtast í skráningarmyndinni. |
Manage space
Manage content
Integrations