Grunnlaun

Lista yfir öll grunnlaunaspjöld starfsmanna er að finna í Hliðarvali > Kjarni > Mannauður > Grunnlaun

Þegar unnið er með grunnlaunaspjald einstakra starfsmanna er mjög þægilegt að velja Hliðarval > Starfsmenn og finna þar viðkomandi starfsmann, smella á ör fyrir framan nafn hans og síðan á ör fyrir framan skipulagseiningu hans og tvísmella þar á spjaldið Grunnlaun. Ef starfsmaður er hættur þá kemur hann ekki fram hér fyrr en hægrismellt hefur verið á einhvern starfsmann og valið þar Birta hætta.

Í grunnlaunaspjaldinu eru skráðar upplýsingar um launatöflu starfsmanns, greiðsluform og greiðslutíðni. Grunnlaunaspjaldið sækir upphæðir í launatöflur. Þegar launaliður t.d yfirvinna sem sækir upphæð í launatöflur er skráður í skráningu launa þá er upphæðin sótt í launatöflu starfsmanns út frá grunnlaunaspjaldinu.
Eingöngu ein færsla getur verið í gildi hverju sinni, en hinsvegar er hægt að setja færslur fram í tímann.

Athugið að við starfslok geta starfsmenn fengið laun þó svo að þeir séu hættir - svo framarlega sem grunnlaunaspjaldið sé opið á launatímabilinu.

Þegar grunnlaunaspjaldi er lokað birtist starfsmaður ekki lengur í launaskráningu. Viðvörun kemur ef reynt er að loka grunnlaunaspjaldi og launþegi á launafærslur í opinni útborgun á tímabili lokunar.

Ef launafærslur eru til á starfsmann í launaáætlun fram í tímann, þá er grunnlaunaspjald afritað og hakað við Aðeins í áætlun. Dagsetning í Gildir til þarf að vera til loka tímabils áætlunar.

 



Hægt er að velja um eftirágreidd eða fyrirframgreidd laun undir greiðsluform. Ef valið er „Eftirá" þá fá dagsetningar launafærslu sömu dagsetningu og skráð er í reitinn „Eftirá" í launaútborgun. Sama með „Fyrirfram" 

Ef valið er „Eftirá og fyrirfram" þá fær starfsmaður tvöföld laun á meðan spjaldið er í gildi og fá færslurnar sína hvora dagsetninguna. Afreiknaðar færslur verða líka tvöfaldar. 

Dæmi: Eftirágreiddur starfsmaður er fastráðinn og fær um leið að fara á fyrirframgreidd laun. Þessi mánaðamót fær hann því greidd tvöföld laun, annars vegar fyrir síðasta mánuð og hins vegar fyrir næsta mánuð. Grunnlaunaspjald starfsmanns er afritað frá og með mánaðamótum. Sjálfkrafa fær eldra spjaldið til dagsetningu, síðasta dag núverandi mánaðar. Nýja spjaldið fær frá dag fyrsta dag næsta mánaðar og skráður er til dagur síðasti dagur þess mánaðar. Um leið er valið greiðsluform „Eftirá og fyrirfram". Spjaldið afritað á ný og því gefin frá dagsetning fyrsti dagur þar næsta mánaðar. Í því spjaldi er valið greiðsluform „Fyrirfram" 

Ef útborgunum er skipt upp eftir hópum þá er réttur launahópur valinn úr fellivali. Þegar útborgun er stofnuð er valinn inn sá hópur eða þeir hópar sem fram eiga að koma í þeirri útborgun.

Eins og fyrr sagði þá er einnig hægt að vera með auka færslu í grunnlaunaspjaldinu fyrir hætta starfsmenn, þannig að þeir komi áfram fram í launaáætlun en hætti að birtast í launaútborgun.

Fellival er í boði til að skrá inn ástæður fyrir persónulegum launabreytingum, þessar ástæður er hægt að skoða í listanum Grunnlaun i Kjarni > Mannauður.

Undir flipunum álag og grunnlaunaflokkur er skráning á álagi skv. kjarasamningum ríkis og sveitarfélaga, annars vegar álagsprósenta og hins vegar viðbótar launaflokka vegna menntunar, símenntunar, tryggðar eða stjórnunarálags.  Ef skráður er grunnlaunaflokkur flyst hann upp í svæðið Launaflokkur ásamt samlagningu allra aukaflokka.

Undir Töfluupphæðir er hægt að skoða fjárhæðir valinna launaliða útfrá grunnlaunum starfsmanns.

Sjá nánari leiðbeiningar hér:https://kjarni.atlassian.net/wiki/spaces/KJAR/pages/17400121

Breyting á grunnlaunaspjaldi

Ef breytingar verða á launakjörum starfsmanns, er núverandi færsla afrituð yfir á nýja dagsetningu og gildum breytt í nýrri færslu. Þannig geymist sagan yfir persónubundnar launahækkanir. Þetta gefur einnig möguleika á sjálfvirkum launaleiðréttingum ef sú þörf skýtur upp kollinum.

Athugið að nota ávallt aðgerðina Afrita í stað þess að smella á plúsinn og stofna nýja færslu. Það að afrita færslu minnkar handavinnu og dregur þannig úr líkum á innsláttaravillum.

Athugið að þegar slíkar breytingar verða að fylgja ávallt eftirfarandi vinnuferli:

  1. Afrita færslu.

  2. Breyta gildum.

  3. Vista færslu.

  4. Fríska gluggann.

  5. Geyma og loka.

Launaupphæð skráð í launatöflu um leið og breyting er gerð á grunnlaunaspjaldi

Þegar launatöflur eru byggðar þannig upp að launaflokkur er númer launamanns, þá þarf að muna að bæta við upphæð í launatöflu starfsmanns. Það er hægt að gera beint úr grunnlaunaspjaldi starfsmanns.
Til að opna launatöflu með innskráningarmöguleika beint úr grunnlaunaspjaldi, þá er Ctrl takka haldið niðri og smellt á táknið þrjá punkta í svæðinu Samningur. Þá opnast flipinn Launatöflur og gögnum viðhaldið þar.



Uppfæra samning, launaflokk og þrep í skráningu

Ef gerð er breyting á grunnlaunaspjaldi eða  ný færsla er stofnuð eftir að launafærslur eru komnar á starfsmann í launaskráningu þá er hægt að uppfæra upplýsingrnar í skráningunni.

Upp kemur melding og Kjarni gerir athugasemd vegna lokunardagsetningar eldra spjaldsins þar sem laun eru til fyrir þá dagsetningu en hann vistar nýja spjaldið og þetta er því eðlileg virkni.





Þegar smellt er á OK þá kemur upp nýr gluggi þar sem bent er á að grunnlaunaspjald hafi verið uppfært og spurt hvort uppfæra eigi launafærslur í opinni útborgun.



Þegar smellt er á "Já" opnast yfirlit yfir aðgerðina sem er að fara af stað og þar kemur fram hvaða launamann er verið að uppfæra og í hvaða útborgun.

Sjáfgefið er hakað í "Geyma niðurstöðu" og "Reikna laun"

Einnig er hægt að komast í aðgerðina í "Skrá laun" með því að smella á aðgerðarhjólið og velja hana þar.

Villuboð um að grunnlaunaspjald vanti þegar laun eru reiknuð

Ef að upp koma villboð um að grunnlaunaspjald vanti fyrir launamann þá er hægt að tvísmella á línuna og komast þannig í breytingarham grunnlaunspjaldsins og opna það þannig.

Þegar sjaldið opnast eru svæðin gildir frá og gildir til með bláum tölustöfum og hægt er að opna spjaldið alveg eða opna það út tímabil útborgunar.