Skýrslan Jafnlaunavottun - bæta við menntunarflokki
Svæðunum Menntunarflokkur nr og Menntunarflokkur hefur verið bætt í skýrsluna Jafnlaunavottun. Hægt er að draga þessi svæði inn með því að fara í Velja dálka.
Skýrslan Jafnlaunavottun - bæta við svæðinu Grunnlaunaflokkur
Nú er hægt að draga svæðið Grunnlaunaflokkur inn í skýrsluna Jafnlaunavottun
Áminning - Afmælisdagar
Bætt hefur verið við áminningu fyrir afmælisdaga starfsmanna. Ef óskað er eftir að bæta þessari áminningu við skal senda beiðni á service@origo.is
Starfsmannalisti á Kjarnavef - Kyni bætt við
Nú er hægt að velja kyn inn í starfsmannalistann á Kjarnavef.
Starfsmannalisti á Kjarnavef - Töfluhaus festur
Töfluhaus er nú fastur í starfsmannalistanum á Kjarnavef þegar skrollað er niður listann.
Tölfræði á upphafssíðu Kjarnavefs - Breytingar á listum í leitinni
Ef þau fyrirtæki sem á að birta tölfræði fyrir á Kjarnavef eru talin upp í stillingunni Hr.Statistics.Companies þá birtast núna eingöngu þau fyrirtæki í leitarlistanum. Einnig birtast núna eingöngu þær skipulagseiningar í leitinni sem tilheyra þeim fyrirtækjum sem skilgreind eru í stillingunni.
Starfsmannamyndir - Birting á vefum frá viðhengjaspjaldi
Núna er hægt að birta starfsmannamyndir á starfsmannavef og Kjarnavef sem settar eru í viðhengjaspjald starfsmanna (á tegund skjals = Mynd) ef notendur kjósa það í stað þess að vera með starfsmannamyndir á vefslóð í stillingunni Xap.EmployeeMaster.ImagePath. Ath. ef þessi virkni er notuð þá verður að vera lesaðgangur að skjalatýpunni Mynd fyrir alla starfsmenn í starfsmannavefshlutverkinu svo að myndir af starfsmönnum birtist á afmælisflísinni á starfsmannavefnum. Ef óskað er eftir að bæta þeim aðgangi við skal senda beiðni þess efnis á service@origo.is
Yfirmaður sjái samþykkt orlof þegar skráður er tímastjóri á starfsmann
Þegar tímastjóri var skráður á starfsmann þá sá yfirmaður ekki samþykkt orlof starfsmannsins undir Mannauður > Orlof > Samþykkt orlof. Þetta hefur verið lagað.