Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 12 Current »

Efst í hægra horninu er valmynd þar sem hægt er að komast inn á síður starfsmannavefsins. Undir Námskeið í boði er að finna öll námskeið sem eru virk í fræðslulausninni og standa starfsmönnum til boða. 


Námskeið í boði

Námskeið sem eru í boði og eru virk í fræðslulausn Kjarna birtast starfsmanninum undir Námskeið í boði í hliðarvalmynd og flokkast ýmist eftir námskeiðsflokki eða námskeiðstegund (fer eftir því hvernig starfsmannavefurinn er stilltur). Starfsmaður getur skráð sig á námskeið í gegnum vefinn með því að smella á Skrá mig og fær í framhaldinu sent fundarboð. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna með því að smella á Nánar

Námskeið sem ég er skráð(ur) á

Undir Námskeið sem ég er skráð(ur) á eru ólokin námskeið sem starfsmaður er skráður á eða námskeið sem starfsmaður hefur setið en á eftir að staðfesta í fræðslulausn Kjarna. Þegar námskeið hefur verið staðfest í fræðslulausninni hverfur námskeiðið úr Námskeið > Námskeið sem ég er skráð(ur) á og verður eftir það aðgengilegt undir Námskeið á upphafssíðu starfsmannavefsins. 

Afskráning og biðlisti

Ef þátttakandi kemst ekki á námskeið velur hann Afskrá mig og hættir þá námskeiðið að birtast undir Námskeið sem ég er skráð(ur) á og birtist þess í stað aftur undir þeim námskeiðsflokki eða námskeiðstegund sem það tilheyrir. Fær þátttakandi sent afboðun á fundarboðið.

Þátttakandi getur ekki skráð sig á biðlista ef námskeið er fullt í gegnum starfsmannavefinn en sú virkni mun koma í framtíðarútgáfu. Hægt er að skrá þátttakendur handvirkt á biðlista í Kjarna.



  • No labels