Starfsmannavefur - sækja um dagpeninga | |
---|---|
Starfsmaður getur sent inn dagpeningabeiðni gegnum starfsmannavefinn. Beiðnin sendist á Kjarnavef og birtist hjá yfirmanni starfsmanns. Sjá ferlið á starfsmannavef hér til hliðar. | |
Starfsmaður fyllir inn allar umbeðnar upplýsingar á flís. Þegar staðsetning er valin þá fyllist sjálfkrafa út í dálkinn “Flokkur” en það þarf að velja hvort dagpeningar séu hefðbundin ferð erlendis eða vegna þjálfunar/náms/eftirlitsstarfa. Þetta köllum við tegund ferðar. Þegar búið er að velja tegund ferðar þá er hægt að velja um hvort greiða á fyrir Gistingu, Annað eða Bæði. Kerfið reiknar þá út upphæð dagpeninga miðað við fjölda daga og skráð gengi. Fyrir neðan niðurbrot á útreikningi getur starfsmaður skráð skýringu ferðar. |
Dagpeningabeiðni á Kjarnavef
Yfimaður sér beiðnina undir Mannauður > Beiðnir á Kjarna vefnum.
Þar getur hann valið um að Samþykkja eða Hafna beiðninni.
Ef dagpeningabeiðni er samþykkt fer hún sjálfkrafa undir Dagpeningar > Færslur á Kjarna vef.
Þar birtist færslan samþykkt og einnig flyst hún samþykkt undir dagpeningar í client.
Skráning
Einning er hægt að stofna dagpeningafærslur á Kjarnavef>Dagpeningar>Skráning
Þegar ný færsla er stofnuð á vef er starfsmaður valinn, sett inn tímabil og kerfið reiknar út fjölda daga. Hægt er að breyta fjölda daga um hálfan dag +/-.
Þegar staðsetning er valin þá fyllist sjálfkrafa út í dálkinn “Flokkur” en það þarf að velja hvort dagpeningar séu hefðbundin ferð erlendis eða vegna þjálfunar/náms/eftirlitsstarfa. Þetta köllum við tegund ferðar.
Þegar búið er að velja tegund ferðar þá er hægt að velja um hvort greiða á fyrir Gistingu, Annað eða Bæði.
Kerfið reiknar þá út upphæð dagpeninga miðað við fjölda daga og skráð gengi.
Gengi er sótt með vefþjónustu þannig að nýtt gengi er sótt á hverjum degi.
ATH. til þess að áætluð staðgreiðsla reiknist á vefnum þarf að setja skipunina PerDiem.TaxPercent inn í stillingar gildi og setja staðgreiðsluprósentuna sem reikna á í gildi.
Færslur
Dagpeningar>Færslur
Hér kemur listi yfir þær færslur sem búið er að skrá á tímabilinu. Sjálfgefið kemur tímabilið sem mánuðurinn í dag. Með því að fara í Stillingar er hægt að velja hvaða dálkar eiga sjálfgefið að koma fram í listanum.
Hægt er að breyta Launamannanúmeri, Verkefni, Kostnaðarstöð, Skipulagseiningu, Frá, Til og Dagafjölda, öðrum gildum er ekki hægt að breyta í færslunni á vefnum en hægt er að eyða út færslu. Ef ekki á að samþykkja færslu þá ætti að eyða henni út.
Það þarf að vera búið að samþykkja færslur svo hægt sé að bóka og flytja yfir í laun.
Hægt er að samþykkja eina og eina færslu með því að smella á samþykkt fyrir framan færsluna eða samþykkja allar færslur með því að smella á “Samþykkja allt” í tækjaslá.
Hægt er að leiðrétta skráðar dagpeningafærslur á vef með því að smella á
undir aðgerðir.
Tvær aðgerðir eru í boði.
Núlla - Notað ef hætt var við ferð. Ef valið mun nýja færslan núlla út völdu færsluna
Tímabil - Sett inn tímabil sem er notað til að finna mismun fyrir nýju færsluna. Ekki notað ef valið er að núlla.
Leiðrétt færsla stofnast í mínus og hana þarf einugis að samþykkja á vef og flytja svo í útborgun.
Leiðréttingarfærslur þarf ekki að bóka þar sem engin fyrirfram færsla kemur með þeim.