Launasamþykktarferli
APPAIL-2865, 2866, 2932, 2934 & 2935
Launasamþykktarferlið var finpússað með því að bæta við svæðum í samþykktarskýrsluna sjálfa og gera aðgang að samanburði launa milli mánaða aðgengilegri fyrir stjórnendur. Leiðbeiningar um launasamþykktina má finna hér.
Afritun á grunnlaunaspjaldi - Aukaflokkar og símenntunarálag
APPAIL-2963
Þegar grunnlaunaspjald var afritað þá afrituðust ekki með upplýsingar í svæðunum aukaflokkar og símenntunarálag. Þetta hefur nú verið lagað.
Áramótastaða
APPAIL - 2906
Í stað þess að bæta núverandi útborgun við áramótastöðu þegar útborgun er lokað, þá er áramótastaðan endurunnin fyrir allt yfirstandandi ár og birt í einni línu pr. launalið eða ein lína fyrir hvern söfnunarflokk þar sem það á við.
Aðgerðir í hliðarvalmynd Kjarna
APPAIL-2382
Sett hefur verið inn í hliðarval Kjarna Laun og Aðgerðir, Send Vefskil. Þar er hægt að skoða vefskil sem hafa verið send, staðfesting hvert og hvenær þær fóru og með hvaða upplýsingum.
Valskjáir
APPAIL-1339
Í Valskjá fyrir Fyrirtækjalista hefur verið bætt við svæði fyrir bókunarár. Ef sett er inn bókunarár birtist bókunardagur frá 1.1-31.12 þess árs sem var valið. Þetta er flýtileið til að taka út skýrslu fyrir allt árið.
Reikna laun án fæðingardags
APPAIL-1339
Nú reiknast laun án þess að fæðingardagur sé skráður, það stöðvar ekki launaútreikning lengur þó svo að fæðingardagur sé ekki skráður.
Launaseðill ef aðeins réttindaliðir
APPAlL_2284
Ef engar launa eða frádráttarfærslur eru skráðar á starfsmann, heldur eingöngu safnfærslur þá vistast launseðillinn ekki með í XML í banka og birtist því ekki í heimabanka starfsmanns.