Ný tegund af spurningum - skali
APPAIL-3610
Nýrri spurningategund hefur verið bætt við Kjarna. Þessi nýja tegund heitir Skali og á hana er hægt að tengja skala sem stofnaður hefur verið. Þessi spurningategund er ætluð til notkunar í frammistöðumati svo ekki þurfi að handstofna svarmöguleika á hverja spurningu heldur sé í staðinn hægt að tengja tilbúinn skala á viðeigandi spurningar. Þrátt fyrir að spurningategundin sé ætluð fyrir frammistöðumatið þá er samt sem áður einnig hægt að nota hana í öðrum kerfishlutum sem byggja á spurningum og sniðmátum, s.s. ráðningum. Sjá nánar hér: Spurningar og spurningasniðmát í frammistöðumati.