Jafnlaunagreining BSI - Upphæðir miðað við 100% launa
Breyting var gerð á skýrslunni þannig að núna er deilt með greiddum stöðugildum í þær upphæðir sem koma í reitinn samtals í skráningu launa. Þetta er gert til þess að fá allar upphæðir miðað við 100% laun í skýrsluna.
Innheimtustofnun sveitafélaga eru farin að taka við rafrænum skilagreinum með vefskilum
Sjá nánari upplýisngar í handbók 7. Gjaldheimtur í Skila
Bankaskrá með úttektarreikningi
Það er komið nýtt XAP-gildi sem heitir "Xap.BankStatementDisk.AddWithdrawal.[OrgCompanyID]" þar sem [OrgCompanyID] inniheldur númer viðkomandi fyrirtækis. Með því að stofna XAP-gildið "Xap.BankStatementDisk.AddWithdrawal.1" með gildinu "true" er búið að virkja það að útgreiðslureikningur myndist í bankaskrám í fyrirtæki númer 1. Bankaupplýsingar eru skráðar í stofnupplýsingum fyrirtækis.
Jafnlaunavottun - Grunnlaunaspjald, rökstuðningur á frávikum
Tveimur nýjum svæðum hefur verið bætt við grunnlaunaspjaldið, Frávik - skýring og Frávik - frekari upplýsingar. Tilgangur þessara svæða er að hægt sé að skrá rökstuðning á því hvers vegna ákveðnir starfsmenn eru fyrir utan launaramma þeirrar stöðu sem þeir gegna. Frávik - skýring er hugsað fyrir stuttan texta og það svæði verður aðgengilegt í jafnlaunavottunarskýrslu. Frávik - frekari upplýsingar er notað ef skrá þarf ítarlegri upplýsingar.
Starf í jafnlaunavottunarskýrslu BSI
APPAIL-5037
Nú er hægt að draga Starf (starfafjölskyldu) inn í jafnlaunavottunarskýrslu BSI.
Fastir launaliðir - Innlestur
Nú er hægt að lesa inn í svæðið "Sækja í"
Tenging dálkalista við skýrslur
Eftirfarandi skýrslur sækja launaupphæðir í dálkalista þeim tengdum.
Breytingin sem nú var gerð virkar þannig að dálkaheitið sem kemur fram í skýrslunni er dálkaheitið sem skráð er í dálkalistann.
Áður var það staðlað inni í skýrslunni sjálfri.
- Intellecta
- PwC
- Launakönnun sveitarfélaga
- Jafnlaunagreining BSI