Skip to end of metadata
Go to start of metadata
You are viewing an old version of this page. View the current version.
Compare with Current
View Page History
« Previous
Version 9
Next »
| Áður en vinnsla við útborgun getur hafist þarf að stofna nýja útborgun í kerfinu. Það er gert með því að smella á stofna í launahringnum. Þá opnast gluggi með upplýsingum úr þeirri útborgun sem er valin í fellivali efst í vinstra horni skjámyndar |
| Haka við eftirá og/eða fyrirframgreidd laun eftir því sem við á. Ef notaðir eru launahópar þá er númer hóps skráð í reitinn Launahópur nr. og sækir kerfið þá nafn hóps. Aðeins þeir starfsmenn sem skráðir eru í viðkomandi launahóp, verða aðgengilegir í þessari útborgun. Ef enginn launahópur er valinn, þá koma allir starfsmenn fyrirtækis fram í útborgun. Launahópur er stofnaður úr grunnlaunaspjaldi starfsmanna. Ef valinn er launahópur sem enginn starfsmaður hefur fengið úthlutað, þá opnast skráningarmynd launa ekki. Á skjáinn kemur villumeldingin "Vinsamlega athugið skráningar starfsmanna. Starfsmenn þurfa að hafa skráðar upplýsingar í spjöldin Tenging innan fyrirtækis, Grunnlaun og Vinnutími."
Þegar hakað er við Eftirá og/eða fyrirfram og útborgunardagur er sleginn inn fyllir kerfið sjálfkrafa inn í reitina Útborgun nr., Nafn á útborgun og Tímabil – eftir því hvaða forsendur eru valda |
| Þegar aðeins er verið að greiða eftirá greidd laun: - Útborgun númer = númer mánaðar sem skráður er í útborgunardag.
- Nafn á útborgun = nafn mánaðar sem skráður er í útborgunardag
Þegar laun eru aðeins greidd eftirá eru þau yfirleitt greidd út síðasta dag mánaðar. - Tímabil byrjar = fyrsti dagur mánaðar sem skráður er í útborgunardag.
Tímabil endar = síðasti dagur þess mánaðar sem skráður er í útborgunardag
|
| Þegar aðeins er verið að greiða fyrirframgreidd laun Ef hakið er tekið af Eftirá og bara skráð í Fyrirfram í svæðinu Tímabil, þá breytast dagsetningar til samræmis. Hak tekið af Eftirá – útborgun aðeins fyrir FYRIRFRAM. Þegar laun eru aðeins fyrirfram greidd, þá eru þau greidd fyrsta dag mánaðar.
- Tímabil byrjar = fyrsti dagur þess mánaðar sem skráður er í útborgunardag.
Tímabil endar = síðasti dagur þess mánaðar sem skráður er í útborgunardag
|
| Þegar verið er að greiða bæði eftirá- og fyrirframgreidd laun Ef hakað er bæði við Eftirá og Fyrirfram í svæðinu Tímabil, þá breytast dagsetningar til samræmis. Þegar laun eru greidd fyrir tvö tímabil er mismunandi hvort borgað er fyrsta dag fyrirfram mánaðar eða síðasta dag eftirá mánaðar. - Tímabil byrjar = fyrsti dagur FYRRI mánaðar sem skráður er í útborgunardag.
- Tímabil endar = síðasti dagur SEINNI mánaðar sem skráður er í útborgunardag
|