Staðsetning birtist ekki þegar starfsmaður skráir á sig námskeið ef tómur valmöguleiki er til fyrir staðsetningu
Ef tómur valmöguleiki var til fyrir staðsetningu undir kerfishlutanum Fræðsla var staðsetning ekki að birtast þegar starfsmaður skráði á sig námskeið undir Mínar upplýsingar. Þetta hefur verið lagað.
Aðgangur ekki leyfður að hengja skjal við Samþykki á stöðuluðu hlutverki fyrir starfsmannavefinn
Ef starfsmenn voru með staðlað hlutverk fyrir starfsmannavefinn höfðu þeir ekki aðgang til að hengja skjal við Samþykki. Þetta hefur verið lagað. Athugið að það getur þurft að bæta við skjalategund í hlutverkið fyrir starfsmannavefinn. Ef þið óskið eftir breytingu á hlutverkinu fyrir starfsmannavefinn þarf að senda beiðni á service@origo.is
Starfsmannaleit ekki að skila öllum niðurstöðum þegar leitað er eftir hæfni
Ef leitað var eftir hæfni var starfsmannaleitin ekki að skila öllum niðurstöðum. Þetta hefur verið lagað.