Ráðningar á vef 20.2.1
Viðhengi opnast í mannauðskerfi eftir Onboarding ferli á ráðningarvef.
Það brotnaði hjá okkur í síðustu útgáfu að viðhengin sem fluttust yfir í mannauðskerfið með starfsmanni, eftir ráðningu í gegnum onboarding ferlið á vefnum, voru ekki að opnast. Þetta hefur verið lagað.
Hægt að skrá inn fleiri en einn tengilið á auglýsingu á ráðningarvef
Það var aðeins hægt að skrá inn einn tengilið á auglýsingar á ráðningarvefnum. Nú er hægt að skrá inn fleiri tengiliði með því að setja kommu á milli netfanga.
Heiti bréfa sem send eru á umsækjendur frá ráðningarvef sótt í Lýsing.
Heiti bréfa sem send voru á umsækjendur frá ráðningarvef voru sótt í dálkinn Efni bréfs í stað þess að sækja heiti úr dálknum Lýsing. Þetta hefur verið lagað.
Notendur geta skráð sig inn á ráðningarvefinn án þess að vera tengdir saman í EmployeeXapUser.List
Það var þannig að notandi þurfti að vera til sem starfsmaður í Kjarna til að geta loggað sig inn á ráðningarvefinn. Þetta hefur nú verið lagað og ekki lengur þörf á að tengja saman notanda og starfsmann í EmployeeXapUser.List.
Hægt að breyta lykilorði notanda á ráðningarvef.
Notendur gátu ekki breytt lykilorði á vefnum sem þeir fengu úthlutað þegar þeir voru stofnaðir sem notendur í Kjarna. Þessari virkni hefur verið bætt við.