Starfsmannavefur 20.5.1
Þýðingar á starfsmannavef.
Nokkrar viðbætur voru gerðar við þýðingar undir Mínar upplýsingar á starfsmannavef.
Birting upplýsinga um lífeyrissjóð, séreignarsjóð, stéttarfélag og starfsmannafélag
Upplýsingar um lífeyrissjóð, séreignarsjóð, stéttarfélag og starfsmannafélag munu nú birtast sjálfkrafa á starfsmannavef. Til þess að fela þessa birtingu þarf að setja inn eftirfarandi stillingar í vefgildi á true; Employee.Web.Hide.EmployeeDetailPension og Employee.Web.Hide.EmployeeDetailUnion. Ath. að til þess að þessar upplýsingar birtist á starfsmannavef þarf að bæta við aðgangi að þeim í Starfsmannavefshlutverkið. Viðskiptavinir eru því beðnir um að senda inn mál á service@origo.is þess efnis.
Hægt að breyta kyni undir Mínar upplýsingar.
Nú er hægt að breyta kyni undir Mínar Upplýsingar á starfsmannavef.
Hægt að breyta texta á heiti frammistöðumats á starfsmannavef.
Nú er hægt að breyta heiti texta frammistöðumats á starfsmannavefnum. Stillingin Employee.Web.Appraisal.Title er sett inn í Stillingar > Vefgildi. Ef þessi stilling er ekki inni eða ekkert skráð í gildið þá er heitið á starfsmannavef áfram Frammistöðumat. Ef heitið á starfsmannavef á að vera Samtal þá er Discussion sett í gildið. Ef heitið á starfsmannavef á að vera Starfsþróunarsamtal þá er Development sett í gildið. Ef heitið á starfsmannavefnum á að vera Starfsmannasamtal þá er Conversation sett í gildið.
Hægt að prenta út yfirlit yfir námskeið, menntun, réttindi, hæfni og hluti í láni.
Bætt hefur verið við prentvirkni á starfsmannavefinn þannig að nú er hægt að prenta út yfirlit yfir námskeið, menntun, réttindi, hæfni og hluti í láni.