Almennt 21.4.1

Notendanafn sótt í AD og tenging við starfsmann

APPAIL-7818
Ef verið var að sækja notendanafn í AD þá stofnaðist notandinn í Kjarna en myndaði ekki tengingu við starfsmanninn í EmployeeXapUser.List. Þetta hefur verið lagað.

Multi tenant í Azure AD

APPAIL-7851

Bætt hefur verið við stuðningi við multiple Azure AD tenants.

Síðasti starfsdagur í vefþjónustunum

APPAIL-7822

Í útgáfu 21.3.1 kom sú breyting að dagsetningin fyrir Síðasti starfsdagur hélst inni þrátt fyrir að starfsmaður hæfi aftur störf. Þetta var að valda vandræðum í tengingum við önnur kerfi með vefþjónustum og var vefþjónustunum því breytt þannig að ef starfsmaður er í starfi skilar gildið LastDayOfWork engu (null) en hægt er að fá gildið fyrir síðasta starfsdag í vefþjónustunni í nýju gildi LastDayOfWorkRegistered.

Svæðunum Starfsmannafulltrúi, Launafulltrúi og Tímastjóri bætt við starfsmannavefþjónusturnar

APPAIL-7846

Svæðunum Starfsmannafulltrúi, Launafulltrúi og Tímastjóri hefur verið bætt við starfsmannavefþjónusturnar.