/
Hvernig er nýr notandi stofnaður?
Hvernig er nýr notandi stofnaður?
Til að stofna nýjan notanda er farið í Aðgerðir > Stofna notanda
Þegar smellt er á hnappinn opnast þessi gluggi:
Nýr notandi:
- Þegar verið er að stofna notanda í fyrsta sinn er byrjað á því að slá inn notendanafn viðkomandi. Ef að fyrirtæki er með tengingu milli Kjarna og ActiceDirectory er AD notendanafn starfsmanns notað sem notendanafn í Kjarna. Að öðrum kosti er notendanafn frjálst. Þegar notendanafnið er slegið inn birtist lykilorð viðkomandi í tveimur neðstu dálkunum.
- Ef notendanafn starfsmanns er tengt á starfsmanninn í spjaldinu Starfsmaður þá fyllist sjálfkrafa út í tölvupóstfangssvæðið með því netfangi sem skráð er í starfsmannaspjald þessa starfsmanns. Ef það fyllist ekki sjálfkrafa út í tölvupóstfangssvæðið þá er netfang starfsmanns slegið inn. Gæta þarf þess að það sé rétt slegið inn því notandinn fær lykilorðið sent í tölvupósti.
- Að lokum er ýtt á skrá:
Þegar ýtt er á skrá sendist tölvupóstur á notandann með upplýsingum um notendanafn og lykilorð. Notandinn þarf svo að breyta þessu lykilorði við fyrstu innskráningu.
Þegar búið er að ýta á skrá þá opnast gluggi þar sem notandanum er gefinn aðgangur að kerfinu. Það þarf að haka við Has Access sem opnar á notanda í Kjarna auk þess sem tengja þarf viðeigandi hlutverk á notandann. Það er gert með því að smella á Hlutverk.
Smellt er á
hnappinn til þess að hægt sé að velja úr þeim hlutverkum sem er í boði.Ef notandi á að hafa ótakmarkaðan aðgang að Kjarna þá þarf ekki að tengja hlutverk á hann heldur er þá hakað við Is Admin.
Skyldar greinar
, multiple selections available,
Related content
Stofna notanda og gleymt lykilorð
Stofna notanda og gleymt lykilorð
More like this
Notandi stofnaður sjálfkrafa þegar starfsmaður er stofnaður
Notandi stofnaður sjálfkrafa þegar starfsmaður er stofnaður
More like this
Hvernig er aðgangi starfsmanns lokað án þess að honum sé eytt?
Hvernig er aðgangi starfsmanns lokað án þess að honum sé eytt?
More like this
Notandi óvirkjaður sjálfkrafa þegar starfsmaður hættir
Notandi óvirkjaður sjálfkrafa þegar starfsmaður hættir
More like this
Stofna nýja færslu
Stofna nýja færslu
More like this
Aðgangsstýringar í Kjarna
Aðgangsstýringar í Kjarna
More like this