Draugafærslur í launum

Spurning:

Þegar ég keyri villulistann fyrir launaútborgun þá fæ ég athugasemd á starfsmann sem er hættur störfum hjá okkur. En þegar ég fer inn í launaskráninguna þá sé ég ekki þessar færslur. Hvað er að gerast?

Svar:

Það getur komið fyrir að það sé búið að lesa færslur inn í útborgun áður en grunnlaunaspjaldi starfsmanns er lokað, ýmist úr tímaskráningakerfi eða föstum liðum.

Færslurnar eru áfram inni í launaskráningunni, en þú sérð ekki starfsmanninn í starfsmannatrénu þar sem búið er að rjúfa tengslin á milli starfsmanns og launaútborgunar.

Til þess að sjá þessar færslur í launaskráningu , þá þarf að enduropna grunnlaunaspjaldið,  best er  að breyta dagsetningunni í Gildir til, skrá þar 9999, ef viðkomandi á að fá launin greidd.

Athugið að Grunnlaunaspjald verður undantekningalaust að vera í gildi á launatímabilinu til þess að starfsmenn komi fram í útborgun.

Ef starfsmaður á ekki að fá launin greidd sem búið er að skrá er best að fara í flýtiskráningu launa og eyða launafærslunum þar.  Flýtiskráning