Starfsmannavefur 19.3.1

Fela Innskrá með Kjarna notanda þegar verið er að nota Single sign on

APPAIL-5913

Ef verið er að nota Single sign on fyrir innskráningu á starfsmannavefinn koma upp tveir valmöguleikar, Windows innskráning og Innskrá með Kjarna notanda. Núna er hægt að fela hnappinn Innskrá með Kjarna notanda. Ef óskað er eftir þessari breytingu þarf að senda beiðni á service@origo.is

Skilyrða svæði þegar starfsmaður skráir upplýsingar um menntun, réttindi, starfsferil, hæfni og námskeið

APPAIL-5912

Núna er hægt að skilyrða svæði þegar starfsmaður skráir upplýsingar í menntun, réttindi, starfsferil, hæfni og námskeið á starfsmannavefnum. Svæðin eru skilyrt í vefgildi. Hægt að sjá stillingar fyrir vefgildi hér Telja þarf upp tækniheiti þeirra svæða sem á að skilyrða. Ef óskað er eftir aðstoð við þessa breytingu þarf að senda beiðni á service@origo.is

Undirsíða fyrir styrki og heilsueflingu splittað upp í sitthvora síðuna

APPAIL-5936

Í útgáfu 19.1.1 var bætt við flísum fyrir Styrkir og Heilsuefling.á upphafsvalmyndinni á starfsmannavefnum. Aftur á móti var ein undirsíða fyrir báðar þessar flísar. Því hefur verið breytt og er sér undirsíða fyrir styrki og önnur fyrir heilsueflingu.

Tölvupóstur á næsta yfirmann þegar starfsmaður skráir á sig námskeið

APPAIL-5409

Þegar starfsmaður skráði á sig namskeið undir Mínar upplýsingar á starfsmannavefnum var ekki að sendast tölvupóstur á næsta yfirmann og viðbótar netfang sem skilgreint er sem viðtakandi fyrir þessa tölvupósta (ef við á). Þetta hefur verið lagað en athuga þarf ef viðskiptavinir eru að nota þessa virkni að skoða þarf hlutverkið fyrir starfsmannavefinn og bæta við aðgangi í það hlutverk. Ef þið eruð að nota þessa virkni getiði sent beiðni á service@origo.is til að láta yfirfara starfsmannavefshlutverkið.