Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 10 Next »

Skattkort eru alltaf notuð miðað við skatttímabil RSK sem er einn almanaksmánuður.

Ef um hálfsmánaðarlaun er að ræða, þá þurfa dagsetningar útborgunar að vera innan mánaðar.

Dæmi: Vinnutímabil er frá 28. september til 12.október. Þá er dagsetning útborgunar skráð frá 1.-15.október - en aukatímabil skráð rétt vinnutímabil. Næsta tímabil er frá 13.til 27.október. Dagsetning útborgunar er skráð 16.-31.október en rétt vinnutímabil skráð í aukatímabilið.

Á þennan hátt reiknast skattkortið ávallt rétt fyrir mánuðinn og staðgreiðsluskilagrein fer eðlilega inn til RSK.IS

Meðhöndlun skattkorta (Persónuafsláttar)


Gildir frá og til : Þessar dagsetningar hafa sömu virkni og annars staðar í Kjarna, þ.e.a.s. þær ráða því hvort þetta spjald er opnað í launavinnslu eða ekki.

Ef dagsetningar frá og til eru innan tímabils útborgunar, þá er spjaldið opnað í útreikningi launa. Þessar dagsetningar hafa ekki áhrif á hlutfall persónuafsláttar.

Skattkort inn:  Dagsetning þegar skattkortið berst, verður að vera innan þess mánaðar sem laun eru greidd út fyrir.
Skattkort út:  Síðasti dagur nýtingar skattkortsins. Ef starfsmaður á mánaðarlaunum vill t.d. aðeins nýta skattkortið að hluta í mánuði, er síðasti dagurinn skráður hér inn. Hefur áhrif á útreikning launa.
Skattprósenta: Það hlutfall sem starfsmaður má nýta í hverjum mánuði, skv. korti.

Ónotaður:  Safnast sjálfkrafa. Ef nýtt skattkort sem skráð er inn í kerfið, inniheldur ónýttan persónuafslátt, er upphæðin handslegin hér inn.

Þegar skattkort er tekið út, er æskilegt að eyða þessari upphæð út úr kerfinu.

Síðast notað: Kemur sjálfkrafa. Stýrist af dagsetningum í flipanum „Tímabil” sem er skilgreint við stofnun útborgunar. Þegar skattkort er nýskráð inn í kerfið þarf að handskrá þetta inn skv. upplýsingum sem koma frá RSK.

Ef ekkert er skráð í síðast notað nýtir Kjarni persónuafslátt fyrir einn mánuð.

Ef dagsetning síðast notað er ekki síðasti dagur mánaðar, þá mun  Kjarni nýta persónuafslátt vegna þessa mánaðar í dögum.

Dæmi : Skattkort er skráð síðast notað 10.10.2017. Kjarni reiknar persónuafslátt frá 11. til 31.okt.2017 eða í 21 dag. Útreikningur persónuafsláttar í dögum er (Persónuafsláttur á mánuði x 12 mánuðir / 365 dögum)

Laun frá utanaðkomandi aðila:  Þeir sem þiggja laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að upplýsa um hvaða skattþrep skuli miða við í útreikning á staðgreiðslu.

Þessar upplýsingar eru ekki skráðar í skattkort, heldur beint í launaskráningu eða í fasta liði ef viðvarandi ástand.

Launaliður 9140 er skráður inn ásamt einni einingu. Upphæðin miðast við það skattþrep sem við á hverju sinni.

Munið að ef þetta er fast á milli mánaða þá fer launaliður 9140 í fasta liði, annars einu sinni í launaskráningu “skrá laun”.

Meðhöndlun skattkorta um áramót

Um áramót þarf að yfirfara skattkortin og gera þau klár fyrir nýtt skattaár.

Það er gert í hliðarvali Kjarna > Mannauður > Skattkort.

Skattkortin eru flutt í .select lista með þar til gerðu tákni í tækjaslá.

Þægilegt er að nota síuna í dagsetningasvæðinu Gildir til og velja þar inn „Beyond this year“ og skoða þannig eingöngu þau skattkort sem gilda á næsta ári. Það auðveldar yfirferð.

Eyða þarf út ónýttum persónuafslætti ásamt dagsetningu í svæðinu Skattkort síðast notað.

Ef sumarafleysingafólk fær að "geyma" skattkortin sín á milli ára, getur verið ráðlegt að skrá dagsetninguna 31.12.ÁÁÁÁ inn í svæðið Skattkort síðast notað til þess að sumarfólkið nýti persónuafslátt frá áramótum.

 

  • No labels