Melding við stofnun starfsmanns þegar engin staða er valin
Meldingin sem kom upp ef engin staða var valin í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis þegar starfsmaður er stofnaður í gegnum ferlið Stofna starfsmanns var ekki nægilega skýr. Það hefur nú verið bætt svo augljóst sé að velja þarf stöðu til þess að geta haldið áfram með ferlið.
Orlofsflokkur í flýtiráðningu
Í flýtiráðningu komu vísis númer orlofsflokka inn sem númer orlofsflokks, þetta hefur nú verið lagað þannig að réttur orlofsflokkur skili sér inn í orlofsspjaldið.
Launarammi á stöður
Hægt er að tengja launaramma á stöður, upphæð frá og upphæð til. Sjá nánar í handbók Jafnlaunavottun - Launarammi
Starfslýsing á stöður
Nú er hægt að tengja starfslýsingar á stöður beint í gegnum viðkomandi stöðu, sjá nánár hér.