Meðhöndlun skattkorta (Persónuafsláttar) | |
---|---|
Gildir frá og til : Þessar dagsetningar hafa sömu virkni og annars staðar í Kjarna, þ.e.a.s. þær ráða því hvort þetta spjald er opnað í launavinnslu eða ekki. Ef dagsetningar frá og til eru innan tímabils útborgunar, þá er spjaldið opnað í útreikningi launa. Þessar dagsetningar hafa ekki áhrif á hlutfall persónuafsláttar. Athugið að ef launaútborgun nær yfir tvo mánuði þá er það tímabilið sem Kjarni skoðar varðandi gildisdagsetningar, óháð greiðsluformi starfsmanns. | |
Skattkort út: Síðasti dagur nýtingar skattkortsins. Ef starfsmaður á mánaðarlaunum vill t.d. aðeins nýta skattkortið að hluta í mánuði, er síðasti dagurinn skráður hér inn. Dagsetnigin sem skráð er hér kemur í síðast notað þegar útborgun er lokað. Hefur áhrif á útreikning launa. | |
Skattprósenta: Það hlutfall sem starfsmaður má nýta í hverjum mánuði, skv. korti. | |
Ónotaður: Safnast sjálfkrafa. Ef nýtt skattkort sem skráð er inn í kerfið, inniheldur ónýttan persónuafslátt, er upphæðin handslegin hér inn. Þegar skattkort er tekið út, er æskilegt að eyða þessari upphæð út úr kerfinu. | |
Síðast notað: Þetta svæði stýrir því frá hvaða tíma á að nýta persónuafslátt. Þegar skattkort er nýskráð inn í kerfið þarf að handskrá hér síðasta dag þess mánaðar sem persónuafsláttur var síðast nýttur skv. upplýsingum sem koma frá RSK Dagsetningin í þessu svæði uppfærist þegar útborgun er lokað og stýrist af dagsetningum í flipanum „Tímabil” sem er skilgreint við stofnun útborgunar og úr svæðini "skattkort út". Athugið að ef skattkort er skráð fram í tímann, þá þarf að skrá rétta dagsetningu í þetta svæði. Ef ekkert er skráð í síðast notað nýtir Kjarni persónuafslátt fyrir einn mánuð. Ef dagsetning síðast notað er ekki síðasti dagur mánaðar, þá mun Kjarni nýta persónuafslátt vegna þessa mánaðar í dögum. Dæmi : Skattkort er skráð síðast notað 10.10.2017. Kjarni reiknar persónuafslátt frá 11. til 31.okt.2017 eða í 21 dag. Útreikningur persónuafsláttar í dögum er (Persónuafsláttur á mánuði x 12 mánuðir / 365 dögum) | |
Laun frá utanaðkomandi aðila: Þeir sem þiggja laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að upplýsa um hvaða skattþrep skuli miða við í útreikning á staðgreiðslu. Þessar upplýsingar eru ekki skráðar í skattkort, heldur beint í launaskráningu eða í fasta liði ef viðvarandi ástand. Launaliður 9140 er skráður inn ásamt einni einingu. Upphæðin miðast við það skattþrep sem við á hverju sinni. Munið að ef þetta er fast á milli mánaða þá fer launaliður 9140 í fasta liði, annars einu sinni í launaskráningu “skrá laun”. | |
Greiðslutíðni: Ef notuð er önnur greiðslutíðni en mánaðarlaun þarf að passa vel uppá að dagsetningar séu innan sama mánaðar, sjá hér: Stofna útborgun í kaflanum greiðslutíðni. | |
Meðhöndlun skattkorta um áramótUm áramót þarf að yfirfara skattkortin og gera þau klár fyrir nýtt skattaár. Aðgerðin "Skattkort yfir áramót" núllstillir ónýttan persónuafslátt og setur síðasta dag ársins í síðast notað. Þeir sem hafa aðgang að því að keyra skipanir í vinstra neðra horni í Kjarna, þeir geta keyrt þessa skipun upp og hreinsað út ónýttan persónuafslátt og sett dagsetninguna síðast notað á 31.12.ÁÁÁÁ. Skipun skráð í skipanaglugga : PayEmployeeTaxCardZero.Action Upp kemur valskjár með nýja árið sjálfvalið ÁÁÁÁ. Þar þarf að haka við Núllstilla persónuafslátt og Geyma niðurstöðu og smella loks á Framkvæma. Þá sprettur fram lítill gluggi sem segir notanda hvað Kjarni muni gera, ef það er rétt þá er valið Já, annars Nei eða Hætta við. Þeir sem ekki hafa aðgang að skipana glugganum þurfa að yfirfara skattkortin með þessum hætti: Fara í hliðarval Kjarna > Mannauður > Skattkort Skattkortin eru flutt í .select lista með þar til gerðu tákni í tækjaslá. Þægilegt er að nota síuna í dagsetningasvæðinu Gildir til og skoða þannig eingöngu þau skattkort sem gilda á næsta ári. Það auðveldar yfirferð. Það er annað hvort gert með því að velja þar inn „Beyond this year“ eða velja "Value" og haka við það sem við á, eftir uppsetningu hjá viðskiptavini. Eyða þarf út ónýttum persónuafslætti og setja dagsetningu síðasta dag eldra árs í svæðið Skattkort síðast notað. Ef sumarafleysingafólk fær að "geyma" skattkortin sín á milli ára, getur verið ráðlegt að skrá dagsetninguna 31.12.ÁÁÁÁ inn í svæðið Skattkort síðast notað til þess að sumarfólkið nýti persónuafslátt frá áramótum. | |
|
General
Content
Integrations