Innskráning
Tvær leiðir eru til að skrá sig inn á vefinn. Ef fyrirtæki eru með Single Sign On tengingu í kerfinu dugir að smella á Windows innskráning. Ef fyrirtæki eru ekki með slíka tengingu þarf að nota sama notendanafn og lykilorð og það sem notað er til að skrá sig inn í Kjarna.
Aðgangur
Til að geta gefið starfsmönnum fyrirtækis aðgang að vefnum þurfa notendanöfn þeirra að vera skráð í spjaldið Starfsmaður. Einnig þarf netfangið þeirra að vera skráð í spjaldið Starfsmaður.
Að veita aðgang að kerfinu
Allir starfsmenn þurfa að vera notendur í Kjarna og þurfa að fá sent aðgangsorð til að skrá sig inn á vefinn. Til að stofna notendur í Kjarna er farið í flipann XAP > Stofna notanda. Einnig er hægt að stofna marga starfsmenn sem notendur í einu lagi, sjá hér.
ATH ef að fyrirtæki eru með tengingu við ActiveDirectory þarf ekki að senda starfsmönnum sérstakt lykilorð í Kjarna.
Þegar smellt er á Skrá opnast gluggi þar sem valin eru þau hlutverk sem viðkomandi notandi á að vera með. Hakað er í Is Access og smellt á Hlutverk. Þar þarf að stofna nýja færslu og velja viðeigandi hlutverk. Þeir starfsmenn sem eiga eingöngu að hafa aðgang að starfsmannavef fá á sig hlutverkið Starfsmannavefur.
Til þess að starfsmaður geti skráð sig inn á starfsmannavefinn þarf að vera tenging til staðar á milli starfsmannsins og notandans hans. Er þessi tenging skráð í EmployeeXapUser.List. Myndast þessi tenging sjálfkrafa þegar notandi er stofnaður.
Aftur á móti getur verið að þessi tening sé ekki til staðar hjá eldri viðskiptavinum og getur því þurft að handskrá þessa tengingu í EmployeeXapUser.List. Hægt er að komast í EmployeeXapUser.List með því að slá það inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter.