Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

Version 1 Next »

Meðhöndlun skattkorta (Persónuafsláttar)


Gildir frá og til : Þessar dagsetningar hafa sömu virkni og annars staðar í Kjarna, þ.e.a.s. þær ráða því hvort þetta spjald er opnað í launavinnslu eða ekki.

Ef dagsetningar frá og til eru innan tímabils útborgunar, þá er spjaldið opnað í útreikningi launa. Þessar dagsetningar hafa ekki áhrif á hlutfall persónuafsláttar.

Skattkort inn:  Dagsetning þegar skattkortið berst, verður að vera innan þess mánaðar sem laun eru greidd út fyrir.
Skattkort út:  Síðasti dagur nýtingar skattkortsins. Ef starfsmaður á mánaðarlaunum vill t.d. aðeins nýta skattkortið að hluta í mánuði, er síðasti dagurinn skráður hér inn. Hefur áhrif á útreikning launa.
Skattprósenta: Það hlutfall sem starfsmaður má nýta í hverjum mánuði, skv. korti.

Ónotaður:  Safnast sjálfkrafa. Ef nýtt skattkort sem skráð er inn í kerfið, inniheldur ónýttan persónuafslátt, er upphæðin handslegin hér inn.

Þegar skattkort er tekið út, er æskilegt að eyða þessari upphæð út úr kerfinu.

Síðast notað: Kemur sjálfkrafa. Stýrist af dagsetningum í flipanum „Tímabil” sem er skilgreint við stofnun útborgunnar. Þegar skattkort er nýskráð inn í kerfið þarf að handskrá þetta inn skv. upplýsingum sem koma frá RSK.

Ef ekkert er skráð í síðast notað nýtir Kjarni persónuafslátt fyrir einn mánuð.

Laun frá utanaðkomandi aðila:  Þeir sem þyggja laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að upplýsa um hvaða skattþrep skuli miða við í útreikning á staðgreiðslu skatta.

Þessar upplýsingar eru ekki skráðar í skattkort, heldur beint í launaskráningu eða í fasta liði ef viðvarandi ástand.

Launaliður 9140 er skráður inn ásamt einni einingu. Upphæðin miðast við það skattþrep sem við á hverju sinni.

Munið að ef þetta er fast á milli mánaða þá fer launaliður 9140 í fasta liði, annars einu sinni í launaskráningu “skrá laun”.


  • No labels