...
Þegar umsækjandi hefur fengið stöðuna Tilbúinn til ráðningar þá birtist nafnið hans í listanum undir Ráðningar í hliðarvalmynd vinstra megin. Í þessum lista birtast nöfn þeirra sem á að ráða. Ef það birtist gulur þríhyrningur fyrir aftan nafnið þá þýðir það að viðkomandi er nú þegar til í mannauðskerfi fyrirtækisins og þá þarf að fara inn í mannauðskerfið og virkja starfsmanninn aftur þar. Í þessu sjónarhorni er hægt að velja inn þá dálka sem maður kýs að birtist og í hvaða röð. Í þessu ferli er boðið upp á að óska eftir gögnum beint frá umsækjendum til að auðvelda og einfalda vinnu ráðningaraðilans við stofun starfsmanns. Þau gögn sem hægt er að óska eftir eru þau gögn í skrefi þrjú í onboarding ferlinu; upplýsingar um lífeyrissjóð, banka, stéttarfélag, skattkort og skattkortnánasta aðstandanda.
...
Sé valin sú leið að óska eftir gögnum beint frá umsækjandanum sem á að ráða þá er smellt á “Óska eftir gögnum” (sjá mynd hér að ofan) og þá fær umsækjandi tölvupóst með formi sem þarf að opna og fylla út (sjá mynd hér að neðan). Umsækjandi fyllir út og smellir á “Senda”.
...