...
- 8000 Réttindasöfnun
- Þessi liður er notaður til að safna réttindum til greiðslu á orlofs- og desember uppbótum.
- Þessi liður er skráður í fasta liði starfsmanns á það tímabil sem við á.
- Skráð eining er í samræmi við ráðningarsamning starfsmanns, ef 1 eining þá safnast 1/12 hluti réttinda.
- Ef starfsmaður er launalaus hluta úr mánuði, en á samt að safna fullum réttindum er þessi liður handskráður í útborgun á það hlutfall sem vantar uppá rétt starfshlutfall.
- Þessi liður gefur einungis þessi réttindi ef hann er með í launaútborgun og vistaður í áramótastöðu starfsmanns.
- 8001 Réttindasöfnun – orlofstímar í fæðingarorlofi
- Þessi liður er notaður til að safna orlofstímum.
- Þessi liður er skráður í fasta liði starfsmanns á það tímabil sem við á.
- Skráð eining er í samræmi við ráðningarsamning starfsmanns, ef 1 eining þá full orlofstímasöfnun.
- Þessi liður er líka notaður til að kalla á orlofsskuldbindingu vegna bókunar.
- Ef starfsmaður er launalaus hluta úr mánuði, en á samt að safna fullum orlofstímum er hann handskráður í útborgun á það hlutfall sem uppá vantar rétt starfshlutfall.
- Þegar laun eru reiknuð þá reiknast orlofstímar skv. skráningu starfsmanns (orlofsprósenta og vinnuskylda) og skrást þeir tímar á launalið 9280 alveg eins og þegar orlofstímar reiknast af launum.