Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Á Kjarna vef er virkni fyrir rafrænar undirritanir, m.a. rafræna ráðningarsamninga. Hér má sjá stutt video sem sýnir virknina.

Senda þarf póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja Rafrænar undirritanir á Kjarna vefnum. Hægt er að setja inn stillingar í Kjarna fyrir það hvaða texti sendist í tölvupósti til undirritenda, á hvaða skjalategund í Kjarna undirrituð skjöl vistast og á hvaða netfang tilkynning sendist þegar skjal hefur verið undirritað af öllum aðilum, t.d. á launafulltrúa.

Virknin í Kjarna nýtir Dokobit. Viðskiptavinur þarf einnig að gera samning við Dokobit varðandi rafrænar undirritanir.

Hægt er að kalla fram rafrænar undirritanir frá þremur sjónarhornum á vefnum:

1.Frá hliðarvalmynd vinstra megin á vefnum

Hægt er að útbúa sniðmát fyrir margskonar samninga á vefnum. Smellt er á Sniðmát í hliðarvalmynd vinstra megin og þar valið Nýtt sniðmát eða farið í blýantinn til að breyta eldra sniðmáti.

Image Removed

Image Added

Image Added

Hægt er að kópera afrita texta úr öðru skjali og einnig er hægt að velja inn viðeigandi gildi (mail merge svæði) ef við á með því að smella á Bæta við gildi. Sniðmátið er svo vistað með því að smella á Vista sniðmát.

Image Added

Image RemovedImage Added

Smellt er á Senda skjal til undirritunar úr hliðarvalmynd vinstra megin. Byrja þarf á að velja þann starfsmann sem á að skrifa undir skjal með því að smella á örina í glugganum Leita að starfsmanni , Þá ogþá opnast listi með öllum starfsmönnum og . Einnig er hægt að slá inn nafn viðkomandi í gluggann. Þegar starfsmaður hefur verið valinn þá kemur nafn starfsmannsins í reitinn Undirritendur ásamt þeim yfirmanni sem skráður er á starfsmanninn. Hægt er að fjarlægja yfirmanninn með því að velja X við nafnið hans ef yfirmaður á ekki að fá skjalið til undirritunar.

Síðan er samningurinn valinn inn, annað hvort frá sniðmátum eða með því að uploada pdf. skjali.

Ef smellt er á Breyta hnappinn er hægt að bæta við og/eða breyta texta í sniðmáti sem valið hefur verið inn áður en það er sent til undirritunar án þess að það hafi áhrif á sniðmátið sjálft, þannig er hægt að gera breytingar á skjalinu sem eiga bara við þann tiltekna starfsmann sem verið er að senda skjal á.

Image Removed

Image Added

Image Added

2.Frá Ráðningum/Onboarding

Þegar starfsmaður er ráðinn í gegnum onboarding ferlið á vefnum kemur upp melding þar sem spurt er hvort eigi að útbúa rafrænan ráðningarsamning.

Þegar smellt er á þá opnast gluggi þar sem valinn er inn viðeigandi ráðningarsamningur sem hefur áður verið uppsettur undir sniðmát. Nafn starfsmanns og nafn yfirmanns birtast sjálfkrafa í glugganum Undirritendur, en hægt er að taka út nafn eða velja inn annan aðila ef við á.

Skjalið sem valið er birtist svo hægra megin á skjánum.

3.Frá Teymið mitt

Smellt er á Teymið mitt í hliðarvalmynd vinstra megin og viðeigandi starfsmaður valinn. Þegar upplýsingar um þann starfsmann birtast er hægt að smella á Senda skjal til undirritunar.

Hægt er að sjá stöðu á undirskriftum: