Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 34 Next »

Á Kjarna vef er virkni fyrir rafrænar undirritanir, m.a. rafræna ráðningarsamninga. Hér má sjá stutt video sem sýnir virknina.

Senda þarf póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja Rafrænar undirritanir á Kjarna vefnum. Hægt er að setja inn stillingar í Kjarna fyrir það hvaða texti sendist í tölvupósti til undirritenda, á hvaða skjalategund í Kjarna undirrituð skjöl vistast og á hvaða netfang tilkynning sendist þegar skjal hefur verið undirritað af öllum aðilum, t.d. á launafulltrúa.

Virknin í Kjarna nýtir Dokobit. Viðskiptavinur þarf einnig að gera samning við Dokobit varðandi rafrænar undirritanir.

Hægt er að kalla fram rafrænar undirritanir frá þremur sjónarhornum á vefnum:

1.Frá hliðarvalmynd vinstra megin á vefnum

Hægt er að útbúa sniðmát fyrir margskonar samninga á vefnum. Smellt er á Sniðmát í hliðarvalmynd vinstra megin og þar valið Nýtt sniðmát eða farið í blýantinn til að breyta eldra sniðmáti.

Hægt er að afrita texta úr öðru skjali og einnig er hægt að velja inn viðeigandi gildi (mail merge svæði) ef við á með því að smella á Bæta við gildi. Sniðmátið er svo vistað með því að smella á Vista sniðmát.

Smellt er á Senda skjal úr hliðarvalmynd vinstra megin. Byrja þarf á að velja þann starfsmann sem á að skrifa undir skjal með því að smella á örina í glugganum Leita að starfsmanni og þá opnast listi með öllum starfsmönnum. Einnig er hægt að slá inn nafn viðkomandi í gluggann. Þegar starfsmaður hefur verið valinn þá kemur nafn starfsmannsins í reitinn Undirritendur ásamt þeim yfirmanni sem skráður er á starfsmanninn. Hægt er að fjarlægja yfirmanninn með því að velja X við nafnið hans ef yfirmaður á ekki að fá skjalið til undirritunar.

Síðan er samningurinn valinn inn, annað hvort frá sniðmátum eða með því að uploada pdf. skjali.

Ef smellt er á Breyta hnappinn er hægt að bæta við og/eða breyta texta í sniðmáti sem valið hefur verið inn áður en það er sent til undirritunar án þess að það hafi áhrif á sniðmátið sjálft, þannig er hægt að gera breytingar á skjalinu sem eiga bara við þann tiltekna starfsmann sem verið er að senda skjal á.

2.Frá Ráðningum/Onboarding

Þegar starfsmaður er ráðinn í gegnum onboarding ferlið á vefnum kemur upp melding þar sem spurt er hvort eigi að útbúa rafrænan ráðningarsamning.

Þegar smellt er á þá opnast gluggi þar sem valinn er inn viðeigandi ráðningarsamningur sem hefur áður verið uppsettur undir sniðmát. Nafn starfsmanns og nafn yfirmanns birtast sjálfkrafa í glugganum Undirritendur, en hægt er að taka út nafn eða velja inn annan aðila ef við á.

Skjalið sem valið er birtist svo hægra megin á skjánum.

3.Frá Teymið mitt

Smellt er á Teymið mitt í hliðarvalmynd vinstra megin og viðeigandi starfsmaður valinn. Þegar upplýsingar um þann starfsmann birtast er hægt að smella á Senda skjal til undirritunar.

Hægt er að sjá stöðu á undirskriftum:

  • No labels