Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Þegar umsækjandi hefur fengið stöðuna Tilbúinn til ráðningar þá birtist nafnið hans í listanum undir Ráðningarferli í hliðarvalmynd vinstra megin. Í þessum lista birtast nöfn þeirra sem á að ráða. Ef það birtist gulur þríhyrningur fyrir aftan nafnið þá þýðir það að viðkomandi er nú þegar til sem starfsmaður í mannauðskerfi fyrirtækisins. Er þá um Endurráðningu, Tilfærslu eða Bæta við starfi að ræða (ath. það þarf að setja inn stillingu ef það á að vera hægt að bæta við starfi í gegnum ráðningarferlið). Undir Sýnileg gögn er hægt að velja inn þá dálka sem notandi kýs að hafa sýnilega og í hvaða rörðröð.

...

Í þessu ferli er boðið upp á að óska eftir gögnum beint frá umsækjendum til að auðvelda og einfalda vinnu ráðningaraðilans við stofnun starfsmanns. Þau gögn sem hægt er að óska eftir eru upplýsingar um nánasta aðstanda, stéttarfélag, skattkort, lífeyrissjóð, séreignarsjóð, banka, mynd og sakavottorð. Mynd og sakavottorð eru viðhengi. Hægt er að sleppa einstaka atriðum sem ekki á að óska eftir eða skilyrða þau atriði sem umsækjandi verður að svara. Smellt er á aðgerðina Óska eftir gögnum (sjá mynd hér að ofan) og breytist þá staða ráðningar í Í vinnslu og dagsetningin birtist undir Sent dags.Umsækjandinn fær þá tölvupóst með hlekk sem þarf að opna og fylla út. Umsækjandi fyllir út formið og smellir á Senda.

...

Við þessa aðgerð flytjast persónuupplýsingar umsækjanda yfir í ferlið sem er klárað í nokkrum skrefum. Sjá nánar hér.

Magnráðning

Ef ráða á fleiri en einn starfsmann á sömu stöðu með sömu upphafsdagsetningu og með sömu upplýsingar í grunnlaunaspjaldi, orlof, vinnutíma, lífeyrissjóð og stéttarfélag er hægt að nota aðgerðina Magnráðning. Er þá hakað við þá umsækjendur sem á að magnráða og valin hnappurinn Magnráðning

...

Athugið eins og er er bara hægt að nota þessa virkni fyrir starfsmenn sem ekki eru til í Kjarna, þ.e. ef það er gulur þríhyrningu (warning) við starfsmanninn þá er ekki hægt að keyra aðgerðina Magnráðning á þann starfsmann þar sem um tilfærslu/endurráðningu er að ræða í því tilfelli. Ef aðilar hafa verið valdir sem eru nú þegar til í Kjarna koma upplýsingar um það í ferlinu

...

Ef óskað hefur verið eftir gögnum frá umsækjanda og hann skilað þeim inn þá koma þær upplýsingar ekki upp í magnráðingu. Þau gögn sem sett eru inn í magnráðningu yfirskrifa gögnin sem umsækjandinn skilaði inn þegar hann er ráðinn í gegnum magnráðningu. Ef nota á gögnin sem umsækjandinn skilaði inn þarf að fara í gegnum venjulegan ráðningarferil fyrir stakan umsækjanda.