Notandanafn skráð í starfsmannaspjald myndar tengingu við notanda
...
Útfærð hefur verið tenging við fræðslukerfið í Eloomi. Í fyrstu útgáfu af tengingunni er hægt að stofna skipuritið og starfsmenn úr Kjarna í Eloomi. Í framtíðarútgáfu verður svo hægt að flytja námskeið tilbaka frá Eloomi yfir í Kjarna. Sjá nánar hér.
GDPR - Eyðingarforrit fyrir allar starfsmannaupplýsingar
Bætt hefur verið við nýrri aðgerð undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmannaupplýsingum. Með þessari aðgerð er hægt á einfaldan hátt að eyða út starfsmannaupplýsingum og skjölum fyrir starfsmenn sem hættu fyrir X mánuðum síðan að undanskildum gögnum í starfsmannaspjaldi, launamannanúmeri, starfsaldri og tenging innan fyrirtækis auk launagagna og launaseðla en grunnlaunaspjaldi er eytt. Ef nota á þessa aðgerð þarf að bæta við stillingu í Stillingar > Gildi sem segir til um mánaðarfjölda frá því að starfsmenn hættu.
Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við stillingar og gefið nánari upplýsingar um þessa virkni. Senda skal póst á service@origo.is ef óskað er eftir frekari upplýsingum og aðstoð.