Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 5 Next »

Notandanafn skráð í starfsmannaspjald myndar tengingu við notanda

APPAIL-5413

Í útgáfu 18.9.1 var bætt við að ef notandanafn var skráð í starfsmannaspjald eftir að notandi hafði verið stofnaður myndaðist tenging á milli starfsmanns og notanda (EmployeeXapUser) líkt og gerðist þegar notandanafn var fyrst skráð í starfsmannaspjaldið og svo stofnaður notandi. Aftur á móti var þetta bara að virka ef kveikt var á sjálfvirkri stofnun notanda (User.AutomaticCreate) í Xap > Gildi. Þetta hefur verið lagað og virkar þetta núna hvort sem kveikt er á sjálfvirkri stofnun notanda eða ekki.

Kallað í tengingu við tímaskráningakerfi úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda

APPAIL-5032

Nú er hægt að láta starfsmann sendast yfir í tímaskráningakerfi beint úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda. Til þess að virkja það þarf að setja ákveðnar skipanir inn í ferlið fyrir Stofnun starfsmanns og Flytja umsækjanda. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þetta og skal senda póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja þennan möguleika. 

Tenging við Eloomi

APPAIL-4606

Útfærð hefur verið tenging við fræðslukerfið í Eloomi. Í fyrstu útgáfu af tengingunni er hægt að stofna skipuritið og starfsmenn úr Kjarna í Eloomi. Í framtíðarútgáfu verður svo hægt að flytja námskeið tilbaka frá Eloomi yfir í Kjarna. Sjá nánar hér

  • No labels