Versions Compared
Key
- This line was added.
- This line was removed.
- Formatting was changed.
Smellt er á Ný auglýsing.
Image RemovedImage AddedÍ skrefi 1 eru fylltar út grunnupplýsingar um auglýsinguna:
Nafn; heiti auglýsingarinnar
Lýsing; inniheldur upplýsingar um starfið og hæfniskröfur
Tímabil; upphafs- og lokadagur auglýsingar
Fjöldi lausra staða; ef ráða á fleiri en einn
Hægt að velja hvort auglýsingin eigi að birtast á ytri eða innri vef, eða bæði
Tengiliður; netfang þess aðila sem hefur umsjón með auglýsingunni
Aðgangur; hægt að velja inn þá aðila sem eiga að hafa aðgang að auglýsingunni (ef fleiri en umsjónaraðili). Þetta getur reynst gagnlegt þegar stjórnandi vill hafa aðgang að öllum umsækjendum um tiltekið starf sem verið er að auglýsa.
Samstarfsaðili; t.d. ráðningarþjónusta (ef við á)
Fyrirtæki; ef um er að ræða mörg fyrirtæki fleiri en eitt innan samstæðu
Flokkun auglýsingar; möguleiki að að hafa mismunandi flokka á auglýsingum (ef við á)
Staðfestingarbréf; hægt að velja inn það bréf sem sendist á umsækjanda um leið og hann hefur sent inn umsókn
Í skrefi 2 eru spurningar valdar inn sem á að spyrja um í viðkomandi auglýsingu. Hægt er að stofna spurningar frá grunni eða byggja þær á spurninga sniðmátum. Hægt er að velja eitt eða fleiri sniðmát inn í auglýsingu og spurningahópum og viðbótarspurningum er bætt inn eftir þörfum.
Fyrst um sinn verður haldið utan um spurningar og spurningasniðmát í Kjarna client. Sjá nánar hér.
Í skrefi 3 kemur yfirlit yfir auglýsinguna og svo er smellt á Stofna auglýsingu og þá birtist auglýsingin í yfirliti yfir auglýsingar og einnig birtist hún strax á umsóknarvef þar sem umsækjendur geta sótt um.