Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Ef umsækjandi hefur ekki áður sótt um starf hjá fyrirtækinu áður þarf hann að byrja á því að nýskrá sig á vefinn með því að slá inn nafn, kennitölu og netfang og ásamt því að velja sér lykilorð. Athugið að um leið og umsækjandi nýskráir sig verður hann til sem Umsækjandi í kerfinu, jafnvel þótt hann klári ekki að senda inn umsókn um tiltekið starf.

Ef umsækjandi hefur áður nýskráð sig er hann einungis beðinn um að slá inn kennitölu og það lykilorð sem hann valdi sér.

Hafi notandi gleymt lykilorði er smellt á Gleymt lykilorð hnappinn og nýtt lykilorð er sent á netfang umsækjanda. 


Eftir það opnast umsóknarformið með þeim spurningum sem valdar voru inn í stofnspjaldi auglýsingar.

Image RemovedImage RemovedImage AddedImage Added

Spurningarnar opnast eins og þær voru stilltar í stofnspjaldi auglýsingar. Ef að spurning var með valmöguleikann að svara oftar en einu sinni, eins og t.d. spurning um menntun þar sem umsækjendur eru beðnir um að setja inn alla þá menntun sem þeir hafa velur umsækjandinn Bæta við fyrir hverja færslu sem hann skráir.

Image RemovedImage Added

Þegar umsækjandi hefur lokið við að fylla út umsókn er smellt á Senda umsókn neðst í umsóknarforminu.

Image Added

Að velja tungumál.

Efst í hægra horninu á vefnum er valmöguleiki þar sem hægt er að skipta tungumáli úr íslensku yfir í ensku. Athugið að þessi aðgerð breytir ekki tungumálinu á spurningum eða listum á bakvið spurningar. Þær þarf að þýða sérstaklega í Kjarna.