...
Ef fyrirtæki eru með tengingu milli Kjarna og Þjóðskrár uppfærast lögheimili starfsmanna, þjóðerni og kyn í þessu spjaldi til samræmis við Þjóðskrá þegar keyrð er aðgerðin Þjóðskrá - Uppfæra heimilisföng í Kjarnastarfsmenn undir flipanum Aðgerðir. Aðsetri er hinsvegar aðeins hægt að breyta handvirkt.
Ef nota á myndir af starfsmönnum er best að vista myndirnar á vefslóð og setja slóðina inn í Kjarna >Stillingar> Gildi
Myndirnar þurfa að vera vistaðar annað hvort á kennitölu (ekki með bandstriki), (EntityNR), notandanafni (UserName) eða netfangi(EmailWork).
Til þess að hægt sé að birta myndirnar á starfsmannavefnum og Kjarnavefnum þarf að vista myndirnar á eitthvað opið vefsvæði sem hann getur lesið þær frá.
Á skjámyndinni hér fyrir neðan eru myndir vistaðar undir notandanafni. (Þannig að ef myndir eru t.d. vistaðar undir kennitölu þarf að vera EntityNR í staðinn fyrir UserName í slóðinni).
Einnig er hægt að birta myndir sem vistaðar eru í viðhengjaspjald starfsmanns á tegund skjals = Mynd.
Undir flipanum Nánasti aðstandandi er möguleiki á að skrá tvo aðila:
Ef birta á starfsmannamyndir í starfsmannaspjaldi: Starfsmannamyndir