...
Ath. að hægt er að breyta stöðu umsóknar á nokkrum mismunandi stöðum. Sjá nánar hér.
Þegar umsækjandi hefur fengið stöðuna Tilbúinn til ráðningar þá birtist nafnið hans í listanum undir Ráðningarferli í hliðarvalmynd vinstra megin. Í þessum lista birtast nöfn þeirra sem á að ráða. Ef það birtist gulur þríhyrningur fyrir aftan nafnið þá þýðir það að viðkomandi er nú þegar til sem starfsmaður í mannauðskerfi fyrirtækisins. Er þá um Endurráðningu, Tilfærslu eða Bæta við starfi að ræða (ath. það þarf að setja inn stillingu ef það á að vera hægt að bæta við starfi í gegnum ráðningarferlið og þurfa viðskiptavinir að senda inn beiðni á service@origo.is ef þessi möguleiki á að vera til staðar). Undir Sýnileg gögn er hægt að velja inn þá dálka sem notandi kýs að hafa sýnilega og í hvaða röð.
...
Í þessu ferli er boðið upp á að óska eftir gögnum beint frá umsækjendum til að auðvelda og einfalda vinnu ráðningaraðilans við stofnun starfsmanns. Þau gögn sem hægt er að óska eftir eru upplýsingar um nánasta aðstanda, stéttarfélag, skattkortpersónuafslátt, lífeyrissjóð, séreignarsjóð, banka, mynd og sakavottorð. Mynd og sakavottorð eru viðhengi. Hægt er að sleppa einstaka atriðum sem ekki á að óska eftir (með því að smella á hnappinn svo hann verði grár) eða skilyrða þau atriði sem umsækjandi verður að svara (með því að haka í Skilyrt). Smellt er á aðgerðina Óska eftir gögnum (sjá mynd hér að ofan) og breytist þá staða ráðningar í Í vinnslu og dagsetningin birtist undir Sent dags.Umsækjandinn fær þá tölvupóst með hlekk sem þarf að opna og fylla út. Umsækjandi fyllir út formið og smellir á Senda.
...
Ath. ef umsækjandi vill fá formið yfir á ensku þá er smellt á EN neðst á síðunni eftir að formið er opnað.
...
Þegar umsækjandi hefur fyllt út í formið og smellt á Senda breytist staða ráðningar úr Í vinnslu í Svörum skilað. Einnig er hægt að velja Skoða til að sjá þau gögn sem umsækjandinn sendi inn. Smellt er svo á Ráða/Endurráða til að klára Ráðningarferlið.
...