Þekking og fræðsla
Undir þekking og fræðsla eru vistaðar upplýsingar um menntun, hæfni, réttindi og þau námskeið sem starfsmaður hefur sótt á vegum fyrirtækisins. Hægt er að handslá gögnin inn en upplýsingar um menntun, hæfni og réttindi geta einnig komið úr ráðningarkerfinu hafi starfsmaður verið ráðinn í gegnum auglýsingu þar sem spurt var um þessa þætti.
Í hverju spjaldi eru fellilistar. Með kerfinu koma grunnlistar en viðskiptavinir geta sjálfir uppfært sína lista og bætt við í grunngögnum fyrirtækis.
Í spjaldinu réttindi er haldið utan um þau réttindi sem starfsmenn hafa og nýtast í starfi hjá fyrirtækinu. Viðskiptavinir geta sjálfir sett inn hvaða réttindi þau vilja hafa undir grunngögn fyrirtækis. Hæfni og réttindi er hægt að skrá á einstaka starfsmann sem og á stöðu starfsmanns og þannig er einfalt að bera saman hversu vel starfsmaður uppfyllir kröfur starfsins.
Til að stofna nýja færslu í spjaldi eru notaðir viðeigandi aðgerðarhnappar í tækjastikuer smellt á græna plúsinn. Sjá nánar hér.
Kerfið býður upp á þann möguleika að senda sjálfvirkar áminningar á ákveðna aðila þegar réttindi renna út. Hægt er að senda á fyrirfram skilgreinda aðila eða ákveðin netföng. Áminningar eru stilltar undir Stofnskrár > Áminningar en það má sjá nánari upplýsingar um áminningarnar hér.
...