Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 7 Next »

Ef viðskiptavinur notar mannauðskerfi Kjarna þá er hægt að klára onboarding-ferlið á vefnum og láta ráðinn umsækjanda stofnast sem starfsmaður í mannauðskerfinu. Þá þarf að breyta stöðu umsækjandans á umsókninni í “Tilbúinn til ráðningar”

Ath. að hægt er að breyta stöðu umsóknar á nokkrum mismunandi stöðum. Sjá nánar hér.

Þegar umsækjandi hefur fengið stöðuna Tilbúinn til ráðningar þá birtist nafnið hans í listanum undir Ráðningar í hliðarvalmynd vinstra megin. Í þessum lista birtast nöfn þeirra sem á að ráða. Ef það birtist gulur þríhyrningur fyrir aftan nafnið þá þýðir það að viðkomandi er nú þegar til í mannauðskerfi fyrirtækisins og þá þarf að fara inn í mannauðskerfið og virkja starfsmanninn aftur þar. Í þessu sjónarhorni er hægt að velja inn þá dálka sem maður kýs að birtist og í hvaða röð. Í þessu ferli er boðið upp á að óska eftir gögnum beint frá umsækjendum til að auðvelda og einfalda vinnu ráðningaraðilans við stofun starfsmanns. Þau gögn sem hægt er að óska eftir eru þau gögn í skrefi þrjú í onboarding ferlinu; upplýsingar um lífeyrissjóð, banka, stéttarfélag, skattkort og nánasta aðstandanda.

Sé valin sú leið að óska eftir gögnum beint frá umsækjandanum sem á að ráða þá er smellt á “Óska eftir gögnum” (sjá mynd hér að ofan) og þá fær umsækjandi tölvupóst með formi sem þarf að opna og fylla út (sjá mynd hér að neðan). Umsækjandi fyllir út og smellir á “Senda”.

Þegar umsækjandi hefur fyllt út formið og smellt á “Senda” breytist staða ráðningar úr “í vinnslu” í “Svörum skilað”. Smellt er svo á “Ráða” til að klára Onboarding ferlið.

Við þessa aðgerð flytast persónuupplýsingar umsækjanda yfir í ferlið sem er klárað í fjórum skrefum. Sjá nánar hér.

  • No labels