Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 17 Next »

Ef viðskiptavinur notar mannauðskerfi Kjarna þá er hægt að klára onboarding-ferlið á vefnum og stofna umsækjanda sem starfsmann í mannauðskerfinu. Þá þarf að breyta stöðu umsækjandans á umsókninni í Tilbúinn til ráðningar.

Ath. að hægt er að breyta stöðu umsóknar á nokkrum mismunandi stöðum. Sjá nánar hér.

Þegar umsækjandi hefur fengið stöðuna Tilbúinn til ráðningar þá birtist nafnið hans í listanum undir Ráðningar í hliðarvalmynd vinstra megin. Í þessum lista birtast nöfn þeirra sem á að ráða. Ef það birtist gulur þríhyrningur fyrir aftan nafnið þá þýðir það að viðkomandi er nú þegar til sem starfsmaður í mannauðskerfi fyrirtækisins og þá þarf að fara inn í mannauðskerfið og virkja starfsmanninn aftur þar (ekki hægt að ráða umsækjandann í gegnum Onboarding ferlið á vefnum). Undir Sýnileg gögn er hægt að velja inn þá dálka sem notandi kýs að hafa sýnilega og í hvaða rörð.

Í þessu ferli er boðið upp á að óska eftir gögnum beint frá umsækjendum til að auðvelda og einfalda vinnu ráðningaraðilans við stofnun starfsmanns. Þau gögn sem hægt er að óska eftir eru upplýsingar um nánasta aðstanda, stéttarfélag, skattkort, lífeyrissjóð, séreignarsjóð og banka. Hægt er að sleppa einstaka atriðum sem ekki á að óska eftir eða skilyrða þau atriði sem umsækjandi verður að svara. Smellt er á aðgerðina Óska eftir gögnum (sjá mynd hér að ofan) og breytist þá staða ráðningar í Í vinnslu og dagsetningin birtist undir Sent dags. Umsækjandinn fær þá tölvupóst með hlekk sem þarf að opna og fylla út. Umsækjandi fyllir út formið og smellir á Senda.

Formið sem umsækjandinn fær:

Þegar umsækjandi hefur fyllt út í formið og smellt á Senda breytist staða ráðningar úr Í vinnslu í Svörum skilað. Smellt er svo á “Ráða” til að klára Onboarding ferlið.

Við þessa aðgerð flytjast persónuupplýsingar umsækjanda yfir í ferlið sem er klárað í fjórum skrefum. Sjá nánar hér.

  • No labels