Í spjaldinu starfsmaður eru skráðar allar grunnupplýsingar um viðkomandi starfsmann. Upplýsingum um starfsmann er viðhaldið í þessu spjaldi, fyrir utan starfsaldur sem reiknast út frá dagsetningum og færslum í spjaldinu tenging innan fyrirtækis og færslum í spjaldinu starfsaldur.
Ef fyrirtæki eru með tengingu milli Kjarna og Þjóðskrár uppfærast lögheimili starfsmanna í þessu spjaldi til samræmis við Þjóðskrá þegar keyrð er aðgerðin Uppfæra heimilisföng í Kjarna undir flipanum Aðgerðir. Aðsetri er hinsvegar aðeins hægt að breyta handvirkt.
Ef nota á myndir af starfsmönnum er best að vista myndirnar á vefslóð og setja slóðina inn í Kjarna >Stillingar> Gildi
Myndirnar þurfa að vera vistaðar annað hvort á kennitölu (ekki með bandstriki), (EntityNR), notandanafni (UserName) eða netfangi(EmailWork).
Til þess að hægt sé að birta myndirnar á starfsmannavefnum og Kjarnavefnum þarf að vista myndirnar á eitthvað opið vefsvæði sem hann getur lesið þær frá.
Á skjámyndinni hér fyrir neðan eru myndir vistaðar undir notandanafni. (Þannig að ef myndir eru t.d. vistaðar undir kennitölu þarf að vera EntityNR í staðinn fyrir UserName í slóðinni).
Einnig er hægt að birta myndir sem vistaðar eru í viðhengjaspjald starfsmanns á tegund skjals = Mynd.